Ársskýrsla dómstóla og dómstólasýslunnar 2024
5. júní 2025
Ársskýrsla Hæstaréttar Íslands, Landsréttar, héraðsdómstóla og dómstólasýslunnar fyrir árið 2024 er komin út.

Ársskýrsla Hæstaréttar Íslands, Landsréttar, héraðsdómstóla, endurupptökudóms og dómstólasýslunnar fyrir árið 2024 er komin út.
Í ársskýrslunni er gerð grein fyrir starfsemi dómstóla og dómstólasýslunnar á árinu. Hún tekur mið af stefnu dómstóla fyrir árin 2023-2027 þar sem áherslurnar eru stafrænt dómskerfi, upplýsingagjöf og fræðsla, mannauður og færni auk húsnæðis– og öryggismála.
Í ársskýrslunni eru einnig tölulegar upplýsingar um fjölda mála og meðalmálsmeðferðartíma á öllum dómstigum.