Dómstig og málsmeðferð
Þrjú dómstig
Á Íslandi eru dómstigin þrjú: héraðsdómur, Landsréttur og Hæstiréttur.
Einnig eru endurupptökudómur sem ákvarðar um hvort eigi að taka mál upp aftur og félagsdómur sem leysir úr ágreiningi á vinnumarkaði.
Sjálfstæði dómstóla
Hvert dómstig er sjálfstætt. Það þýðir að hvert og eitt dómsmál er metið að nýju á hverju dómstigi.
Þriðja valdstoðin
Dómsvaldið er þriðja valdstoðin í þrískiptingu ríkisvalds á Íslandi. Hinar tvær eru löggjafarvald og framkvæmdavald.
Réttlát málsmeðferð
Allir eiga rétt á réttlátri og opinberri málsmeðferð fyrir sjálfstæðum og óvilhöllum dómi. Þessi réttur er meðal annars tryggður í stjórnarskrá Íslands (70. gr) og í Mannréttindasáttmála Evrópu (6. gr.) sem Ísland er aðili að.
Dómari má aldrei vera tengdur neinum sem gæti haft áhrif á afstöðu hans í tilteknum málum.
Hver sá sem borinn er sökum um refsiverða háttsemi skal talinn saklaus uns sekt hans er sönnuð að lögum. Þá á sakborningur rétt á því að fá úrlausn um ákæru á hendur sér innan hæfilegs tíma.
Sjá nánar:
Aðkoma einstaklinga
Ágreiningur. Þegar stefnandi höfðar einkamál. Aðilar málsins, stefnandi eða stefndi, leysa í kjölfarið úr ágreiningnum fyrir dómstólum. Einstaklingar geta líka komið að einkamálum sem vitni.
Stefnandi er sá sem byrjar málið og sækir kröfur.
Stefndi er sá sem málið og krafan beinist gegn og tekur til varna.
Þessir aðilar geta verið einstaklingar, fyrirtæki, félög eða opinberar stofnanir.
Lögin eru brotin. Ef lögbrot á sér stað, eða grunur leikur á lögbroti, getur einstaklingur komið að sakamáli sem brotaþoli, sakborningur eða vitni.
Eitthvað óvænt gerist/Önnur mál.
Mál sem fara fyrir dómstóla
Öll dómsmál fara fyrst fyrir héraðsdómstólana. Mál fyrir héraðsdómi geta verið af ýmsum toga.
Fyrir Landsrétt og Hæstarétt koma einungis mál sem hefur verið áfrýjað. Annað hvort einkamál eða sakamál.
Staðsetning
Einstaklingar eru sóttir til saka fyrir héraðsdómstól í því umdæmi sem þeir eiga lögheimili í eða þar sem afbrot var framið. Í tilfelli fyrirtækja fer staðsetning eftir því hvar fyrirtækið er með starfsstöð.