SES Pro námskeið fyrir fagfólk í apríl og maí 2026
Barna- og fjölskyldustofa býður fagaðilum sem vinna með börnum og fjölskyldum upp á námskeið í stafræna velferðarúrræðinu www.sesfamily.com. En það býður upp á þekkingu og verkfæri fyrir foreldra og börn til að auðvelda foreldrasamvinnu á tveimur heimilum.
Næsta SES PRO námskeið fyrir fagaðila verður haldið í Sjálandi 13. apríl og 28. maí nk.
Námskeiðin eru fagaðilum að kostnaðarlausu. Frekari upplýsingar og/eða skráning fer fram á netföngunum gyda.hjartardottir@bofs.is eða stefania.d.johannesdottir@bofs.is. Örfá pláss laus.
Nánar um námskeiðið
Kennarar: Gyða Hjartardóttir og Stefanía Dögg Jóhannesdóttir, sérfræðingar á Gæðasviði BOFS, Sólveig Sigurðardóttir, deildarstjóri farsældarþjónustu barna á Akranesi og lektor í klínískri félagsráðgjöf við HÍ, Daniel B. Johnsen, klínískur sálfræðingur og rannsakandi og Edda Hermannsdóttir, forstjóri Lyfja og heilsu.
Gestafyrirlesarar: Katrín Reimarsdóttir, félagsráðgjafi og Halldóra Kristín Hauksdóttir, forstöðumaður félagsþjónustu hjá Akureyrabæ og Anna Elísa Gunnarsdóttir og Inga Sigríður Björnsdóttir, félagsráðgjafar hjá Reykjavíkurborg.
Á námskeiðinu verður farið yfir hugmyndafræði SES Family, rannsóknir á SES ONE, innihald stafræn vettvangsins og notkunarmöguleika. Fjallað verður um faglegt efni sem snýr að því hvernig foreldrargeta unnið úr sínum málum eftir skilnað, hvernig foreldrar geta nálgast börnin sín og aðstoðað í tengslum við skilnaðinn og við að alast upp á tveimur heimilum. Jafnframt hvernig foreldrar geta byggt upp góða foreldrasamvinnu, án þess að falla í gryfjur ágreinings. Fjallað verður sérstaklega um áhrif skilnaðar á börn og hvernig hægt er að ráðleggja foreldrum að nálgast börnin sín, sem og hvernig fagaðilar geta nálgast börn í þessum aðstæðum á öruggan og gagnlegan hátt. Nýjustu rannsóknarniðurstöður á SES NXT barnaefninu verða kynntar, sem og farið verður ítarlega yfir stafrænt efni fyrir börn. Gert er ráð fyrir að þátttakendur öðlist færni og fái efni til þess að halda námskeið fyrir foreldra sem eru að skilja og / eða eru að ala upp börn á tveimur heimilum og geti veitt skilnaðarráðgjöf út frá nýjustu rannsóknum og bestu þekkingu. Fagfólk fær gagnlegt efni og þjálfun sem nýtist í daglegum störfum t.d. við að sinna félagslegri ráðgjöf skv. lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga og eftir öðrum lögum.
Dagskráin
Mánudagurinn 13. apríl 2026 (dagur eitt).
9:00 - 10:00 Bakgrunnur, þróun, rannsóknarniðurstöður og innihald, framsetning og notkunarmöguleikar. Gyða Hjartardóttir og Stefanía Dögg Jóhannesdóttir
10:00 - 10:15 Kaffi
10:15 - 11:00 Að öðlast gott foreldrasamstarf án þess að falla í gryfju ágreinings. Gyða Hjartardóttir
11:00 - 12.00 Foreldrar og skilnaður, samvinna og átök. Sólveig Sigurðardóttir
12:00 – 12.45 Hádegismatur
12.45 - 13.30 Hópavinna - Hvað þarf að hafa í huga þegar við erum með foreldra í ágreiningi og með hvaða rafrænu námskeiðum mynduð þið mæla með ?
13:30 - 14:00 Reynsla af notkun og innleiðingu SES á Akureyri. Katrín Reimarsdóttir, félagsráðgjafi og Halldóra Kristín Hauksdóttir, lögmaður hjá Akureyrarbæ
14:00-14:30 Reynsla af notkun og innleiðingu SES í Reykjavík. Anna Elísa Gunnarsdóttir og Inga Sigríður Björnsdóttir, félagsráðgjafar hjá Reykjavík
14:30 - 14:45 Kaffi
14:45 - 15:15 Hvernig samþættum við SES annarri þjónustu á okkar vinnustað? Hópastarf – skipt í 4 hópa. Innleiðing SES á vinnustað og á landsvísu, samfélags- og fjölmiðlar – að ná til foreldra, barna og fagfólks (tilvísenda)
15:15 - 15:30 Umræður og lok.
Fimmtudagurinn 28. maí 2026 (dagur tvö).
9:00 – 10:00 Áhrif skilnaðar á börn og samskipti á forsendum barna. Gyða Hjartardóttir
10:00 - 10:15 Kaffi
10:15 - 11:15 SES fyrir börn og SES NXT efni. Gyða Hjartardóttir og Stefanía Dögg Jóhannesdóttir
11:15 - 12:00 Verkefnavinna – að tala við börn, hverjar eru helstu áskoranirnar?
12:00 – 12:45 Hádegismatur
12:45 – 13:45 Hvað segja börnin sjálf ? Fyrstu rannsóknarniðurstöður af árangri og áhrifum SES NXT kynntar. Daniel B. Johnsen klínískur sálfræðingur og rannsakandi SES NXT
13:45 -14:25 Framkoma í ræðu og riti. Edda Hermannsdóttir, forstjóri Lyfja og Heilsu
14:25 - 15:20 Hvernig samþættum við SES annarri þjónustu, eins og farsældar- og barnaverndarþjónustu. Sólveig Sigurðardóttir
15:20 – 15:30 Umræður og lok.
13. maí 2026
Skil á framvinduskýrslu 1 bls. Hér eru þátttakendur beðnir um að nota SES Family vefinn og SES PRO efnið í sinni vinnu og skila stuttri samantekt um þá vinnu. Markmiðið er að tengja efnið daglegri vinnu og hvetja til þess að byrja strax að nota vefinn. Frekari upplýsingar verða veittar á námskeiðinu.
8. júní 2026
10:00 - 12.00 Hóphandleiðsla á Teams. Þátttakendum býðst hóphandleiðsla á einstök mál og / eða að fá ráðgjöf varðandi innleiðingu SES á vinnustaðnum. Innihald handleiðslunnar fer eftir óskum og þörfum hópsins.
