Fara beint í efnið
Barna- og fjölskyldustofa Forsíða
Barna- og fjölskyldustofa Forsíða

Barna- og fjölskyldustofa

Jafnlaunastefna

Barna- og fjölskyldustofa gætir fyllsta jafnréttis við ákvörðun launa og annarra starfskjara. Allt starfsfólk skal fá greidd jöfn laun og njóta sömu starfskjara fyrir jafnverðmæt störf. Skilgreining Barna- og fjölskyldustofu á launajafnrétti styðst við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020.

Til að framfylgja jafnlaunastefnunni skuldbindur Barna- og fjölskyldustofa sig til þess að innleiða, skjalfesta og viðhalda jafnlaunakerfi í samræmi við kröfur ÍST 85:2012 staðalsins. Barna- og fjölskyldustofa hefur innleitt verklag og skilgreint launaviðmið til að tryggja að starfsfólk fái greitt fyrir störf sín út frá verðmæti starfa óháð kyni eða öðrum ómálefnalegum sjónarmiðum.

Til þess að framfylgja jafnlaunastefnunni skuldbindur Barna- og fjölskyldustofa sig til að:

  • Innleiða, skjalfesta og viðhalda jafnlaunakerfi í samræmi við kröfur jafnlaunastaðalsins og öðlast vottun í samræmi við lög nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.

  • Vinna að stöðugum umbótum, eftirliti og viðbrögðum í samræmi við kröfur jafnlaunastaðalsins.

  • Fylgja öllum viðeigandi lögum, reglum og kjarasamningum sem gilda á hverjum tíma og staðfesta hlítni við lög.

  • Framkvæma innri úttektir og rýni stjórnenda árlega.

  • Framkvæma launagreiningu að minnsta kosti árlega þar sem jafnverðmæt störf eru borin saman til að tryggja að kynbundinn launamunur sé ekki til staðar. Helstu niðurstöður skulu kynntar fyrir starfsfólki.

  • Bregðast við óútskýrðum launamun með stöðugu eftirliti og umbótum þar sem þess er þörf.

  • Kynna jafnlaunastefnu fyrir starfsfólki og hafa hana aðgengilega almenningi.

Samþykkt af framkvæmdastjórn Barna- og fjölskyldustofu Reykjavík 16. mars 2022.