Fara beint í efnið
Barna- og fjölskyldustofa Forsíða
Barna- og fjölskyldustofa Forsíða

Barna- og fjölskyldustofa

Traust í fyrirrúmi: ráðstefna um áföll og seiglu í formennskutíð Íslands í Eystrasaltsráðinu 

15. október 2026

Þann 8. október s.l. var haldin ráðstefna í Háskólanum í Reykjavík undir yfirskriftinni „Traust í fyrirrúmi: áfallamiðaðar nálganir“ (e. Starting with Trust: trauma-informed pathways to resilience). Ráðstefnan var liður í formennsku Íslands í Eystrasaltsráðinu. 

Barna- og fjölskyldustofa, dómsmálaráðuneytið og Háskólinn í Reykjavík stóðu að ráðstefnunni, þar sem sjónum var beint að áföllum og seiglu barna í viðkvæmri stöðu og þolenda mansals. 

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, opnaði ráðstefnuna. Að loknu ávarpi hennar flutti Rachel Witkin, sérfræðingur frá Bretlandi, upphafserindi um aðkomu fagfólks að fólki í viðkvæmri stöðu, meðal annars í mansalsmálum. Hildur Sunna Pálmadóttir, aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, tók í kjölfarið dæmi úr íslenskum veruleika. 

Eftir hádegi var dagurinn tileinkaður börnum. Dr. Paola Cardenas, forstöðumaður Barnahúss, greindi frá rannsókn sinni á áfallasögu flóttabarna á Íslandi og Harpa Oddbjörnsdóttir, sérfræðingur í Barnahúsi, fjallaði um það hvernig yfirheyrslutækni Barnahúss er notuð fyrir öll börn sem hafa orðið fyrir áföllum og einnig  gagnvart börnum á flótta og fylgdarlausum börnum, auk áfallameðferðar í Barnahúsi. Jódís Bjarndóttir, sérfræðingur hjá Barna- og fjölskyldustofu, sagði frá því hvernig farsældarlögin geta stutt við börn með áfallasögu og börn á flótta. Að lokum flutti Margrét Sigmarsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, fyrirlestur um SPARE-verkefnið þar sem unnið er með foreldrum barna á flótta. 

Þátttakendur komu frá aðildarríkjum Eystrasaltsráðsins auk Íslands og ráðstefnunni var einnig streymt. 

Í formennskutíð Íslands er sjónum einkum beint að áföllum og seiglu, bæði seiglu einstaklinga og seiglu innan kerfisins. Forstjóri Barna- og fjölskyldustofu fer með formennsku í vinnuhópnum Children at Risk, þar sem lögð verður áhersla á áföll barna með flóttabakgrunn og hvernig hægt er að mæta þörfum þeirra. 

Um Eystrasaltsráðið 

Eystrasaltsráðið var stofnað árið 1992. Í því eiga sæti Norðurlöndin fimm, Eystrasaltsríkin, Pólland, Þýskaland og Evrópusambandið. Skrifstofa ráðsins er í Stokkhólmi og á vettvangi þess er fjölþætt samstarf aðildarríkjanna um málefni á borð við barnavernd, almannavarnir og aðgerðir gegn mansali. 

Ísland tók við formennsku í ráðinu í júlí s.l. og mun veita ráðinu formennsku til 1. júlí 2027. Utanríkisráðuneytið stýrir formennskunni en nýtur stuðnings dómsmálaráðuneytis, mennta- og barnamálaráðuneytis, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis, almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra og Barna- og fjölskyldustofu í störfum vinnuhópa. 

Myndina tók Sigurjón Ragnar og er hún fengin af vef stjórnarráðsins.