Tilkynningum til barnaverndar fækkar
7. júlí 2026
Í þessari samantekt er að finna upplýsingar um fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta samkvæmt sískráningu á fyrstu þremur mánuðum áranna 2024, 2025 og 2026.

Tilkynningar til barnaverndar voru 4.812 á fyrstu þremur mánuðum ársins 2026 sem er fækkun um 4,1% miðað við sama tímabil árið á undan þegar tilkynningar voru alls 5.020. Tilkynningum fækkaði um 5% í Reykjavík og um 9,8% á landsbyggð en þeim fjölgaði í nágrenni Reykjavíkur um 4,3%. Flestar tilkynningar á fyrstu þremur mánuðum ársins 2026 voru vegna vanrækslu á börnum, eða tæplega 38%, og næst flestar tilkynningar voru vegna áhættuhegðunar barns, eða tæp 35%. Tilkynningum vegna vanrækslu fækkaði um 4,2% á milli ára, en sú fækkun í tilkynningum skýrist af 10,5% fækkun á meðal stelpna en tilkynningum vegna vanrækslu stráka fjölgaði um 2%. Fjöldi tilkynninga um ofbeldi gegn börnum var nánast sá sami á fyrstu þremur mánuðum ársins 2026 og á sama tímabili árið 2025 en heilt á litið fækkaði tilkynningum um áhættuhegðun barna fyrir umrætt tímabil.
Samanlagður fjöldi barna sem tilkynnt var um á fyrstu þremur mánuðum ársins 2026 var 3.555 börn en árið 2025 voru þau 3.643 og 3.329 árið 2024. Þess ber að geta fjöldi barna er fenginn þannig að fjöldi barna sem tilkynnt var um í hverjum mánuði fyrir sig er lagður saman. Tilkynningar geta borist um sama barnið á milli mánaða, þannig að hér er ekki um að ræða heildarfjölda einstaklinga yfir tímabilið heldur samanlagðan fjölda barna í hverjum mánuði fyrir sig.
Hér má finna samantektina: Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á fyrstu þremur mánuðum áranna 2024-2026
