Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Barna- og fjölskyldustofa Forsíða
Barna- og fjölskyldustofa Forsíða

Barna- og fjölskyldustofa

Tilkynningum fjölgaði um 10% á milli áranna 2024 og 2025, líkt og árin á undan

1. mars 2026

Í þessari samantekt er að finna samanburð á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta samkvæmt sískráningu barnaverndar á árunum 2023, 2024 og 2025.

Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um 10,0% á árinu 2025 miðað við árið á undan, en tilkynningar á árinu 2025 voru 18.429 talsins. Fjölgunin er sambærileg og á milli áranna 2023 og 2024 þegar tilkynningum fjölgaði um 9,9% en árið þar á undan fjölgaði þeim um 11%. Fjölgun tilkynninga á milli ára átti sér helst stað í nágrenni Reykjavíkur (15,4%) ólíkt því sem sjá mátti fyrir ári síðan þegar fjölgun tilkynninga milli 2023 og 2024 átti sér helst stað í Reykjavík.

Líkt og fyrri ár voru flestar tilkynningar árið 2025 vegna vanrækslu en heilt á litið fjölgaði þeim þó lítið á milli ára. Tilkynningum vegna ofbeldis gegn börnum fjölgaði hins vegar um 13,7% árið 2025 samanborið við 2024 og tilkynningum vegna áhættuhegðunar barna fjölgaði um 15,9%. Hlutfallslega fjölgaði tilkynningum vegna ofbeldis mest í undirflokknum tilfinningalegt ofbeldi (fjölgun úr 2.318 árið 2024 í 2.671 árið 2025) og hlutfallslega fjölgaði tilkynningum vegna áhættuhegðunar mest í undirflokkunum barn kemur sér undan forsjá (fjölgun úr 257 í 355 milli ára) og afbrot barns (fjölgun úr 1.054 í 1.348 á milli ára).

Samanlagður fjöldi barna sem tilkynnt var um árið 2025 var 13.905 börn en sambærilegur fjöldi barna fyrir árið 2024 var 12.658 börn og 11.754 börn árið 2023. Þess ber að geta að tölur um fjölda barna sem tilkynnt var um eru fengnar þannig að fjöldi barna sem tilkynnt var um í hverjum mánuði fyrir sig er lagður saman. Tilkynningar geta borist um sama barnið á milli mánaða, þannig að hér er ekki alltaf um að ræða fjölda einstaklinga yfir ákveðið tímabil heldur samanlagðan heildarfjölda barna í hverjum mánuði fyrir sig.