Starfsfólk Barnahúss heimsækir Barnahus á Írlandi
26. maí 2026
Starfsfólk Barnahúss á Íslandi sótti í lok maí 2026 ráðstefnu í Dublin sem haldin var á vegum Alders Unit við Children’s Health Ireland, sem veitir sérhæfðan stuðning við börn, ungmenni og fjölskyldur þar sem grunur er um kynferðisofbeldi.

Á ráðstefnunni var meðal annars lögð áhersla á að hlusta á raddir þolenda, auk þess sem innlendir og alþjóðlegir sérfræðingar kynntu gagnreyndar aðferðir í forvörnum og íhlutun.

Dómsmálaráðherra Írlands opnaði ráðstefnuna og lagði áherslu á mikilvægi þess að tryggja börnum jafnt aðgengi að réttarkerfinu, auk þess að efla samstarf milli stofnana til að mæta þörfum þeirra.
Heimsókn í Barnahus í Galway
Í tengslum við ráðstefnuna heimsótti starfsfólkið Barnahus í Galway (Barnahus West), sem starfar samkvæmt Barnahus-módelinu að íslenskri fyrirmynd. Þar starfa helstu þjónustuaðilar saman undir einu þaki til að tryggja samræmda og barnvæna þjónustu.
Sérstaka athygli vakti hversu náið samstarfið við heilbrigðiskerfið er, þar sem heilbrigðisþjónusta er í boði fyrir öll börn sem sækja þjónustu Barnahúss.

Ferðin var afar gagnleg og veitti dýrmæta innsýn í þróun þjónustu Barnahúss. Reynslan frá Írlandi undirstrikar sérstaklega mikilvægi þess að uppbygging og þróun Barnahúss sé sameiginlegt verkefni stjórnvalda, þar sem ráðuneyti og viðeigandi stofnanir vinna náið saman.
Slík samvinna milli ráðuneyta er lykilforsenda þess að tryggja heildstæða, samræmda og barnvæna þjónustu. Þessi nálgun er mikilvægt leiðarljós í áframhaldandi þróun Barnahúss á Íslandi, með það að markmiði að styrkja þjónustu og stuðning við börn og fjölskyldur þeirra.
