Fara beint í efnið
Barna- og fjölskyldustofa Forsíða
Barna- og fjölskyldustofa Forsíða

Barna- og fjölskyldustofa

Skráningar á fjölda mála í samþættingu þjónustu

9. júlí 2026

Barna- og fjölskyldustofa birtir nú tölur um fjölda mála í samþættri þjónustu hjá tengiliðum farsældar í heilsugæslu, í leik- grunn- og framhaldsskólum, hjá félagsþjónustu og hjá málstjórum farsældar í félagsþjónustu og barnavernd fyrir fyrstu fjóra mánuði ársins 2026.

Helstu niðurstöður

Flest sveitarfélög skiluðu inn skráningu fyrir fyrstu fjóra mánuði ársins 2026, þó var ekki í öllum tilvikum skilað inn allri skráningu frá sveitarfélögunum, það er upplýsingum frá öllum tengiliðum farsældar í leikskólum, grunnskólum og félagsþjónustu og málstjórum farsældar í félagsþjónustu og barnavernd hjá sveitarfélaginu.

Heldur færri sveitarfélög skiluðu skráningu fyrir tímabilið janúar til apríl 2026, en fyrir sama tímabil árið á undan. Þó fjölgaði sveitarfélögum sem skiluðu skráningu frá tengiliðum í félagsþjónustu og einnig fjölgaði lítillega skráningum frá málstjórum í félagsþjónustu. Skil frá tengiliðum farsældar í heilsugæslu og í framhaldsskólum voru minni á árinu 2026 en á árinu 2025.

Í lok apríl 2026 voru 6.112 mál í samþættingu þjónustu samanborið við 4.669 mál á sama tímabili árið á undan miðað við þau skil sem bárust. Fjöldi nýrra beiðna um samþættingu þjónustu á tímabilinu var 1.191 beiðni samanborið við 1.324 beiðnir fyrir sama tímabil árið á undan.

Hlutfall barna á Íslandi á grunnskólaaldri er 56% og því má reikna með að flestir foreldrar/börn leiti fyrst til tengiliðar í grunnskóla. Þetta má sjá á því að flest mál á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2026 voru hjá tengiliðum í grunnskólum eða rúmlega 46% en þar á eftir hjá málstjórum í félagsþjónustu eða rúmlega 27% mála. Tæplega 47% nýrra beiðna um samþættingu þjónustu á tímabilinu komu til tengiliða farsældar í grunnskólum, þar á eftir til málstjóra í félagsþjónustu og til tengiliða í leikskólum.

Skipting mála eftir staðsetningu málanna er svipuð bæði árin, en langflest mál eru til vinnslu á höfuðborgarsvæðinu þar sem 64% barna á Íslandi búa. Flestar nýjar beiðnir um samþættingu þjónustu voru sömuleiðis á höfuðborgarsvæðinu. Oftar var óskað eftir samþættingu þjónustu fyrir stráka en fyrir stelpur og stálp og var hlutfall barna af erlendum uppruna 20,8% á tímabilinu janúar til apríl 2026 samanborið við 29,7% fyrir sama tímabil árið á undan.

Skýrsluna í heild má nálgast hér.