SES ráðstefnan 2026 er nú aðgengileg hér á vefnum
25. júní 2026
Erindin af ráðstefnunni um stafræna velferðarúrræðið Samvinna eftir skilnað sem haldin var í Sjálandi í Garðabæ í byrjun sumars eru nú aðgengileg hér á vefnum okkar.
Á ráðstefnunni kom saman fagfólk til að hlusta og miðla af reynslu sinni af notkun úrræðisins en einnig var farið yfir yfirgripsmiklar rannsóknir á úrræðinu og notkun þess. Fyrirlesarar komu bæði af vettvangi hér á Íslandi en einnig frá Danmörku og Noregi.
Hér má finna: Upptökur af ráðstefnu erindunum.
