Samantekt um úrræði og umsóknir um þjónustu á árunum 2022–2025
24. júlí 2026
Barna- og fjölskyldustofa hefur birt samantekt um úrræði og umsóknir um þjónustu á árunum 2022–2025.

Svipaður fjöldi umsókna um meðferð
Árin 2024 og 2025 bárust 173 og 170 umsóknir í meðferðarúrræði Barna- og fjölskyldustofu. Það er nokkur fækkun frá árinu 2023 þegar umsóknir voru óvenju margar, einkum í MST.
Umsóknum um meðferðarheimili hefur haldið áfram að fækka og voru þær 38 árið 2025, sem er lægsti fjöldi umsókna á tímabilinu. Ívið fleiri umsóknir bárust vegna drengja árið 2024 en kynjahlutfallið var nánast jafnt árið 2025.
Beiðnir um fósturheimili í svipuðum farvegi
Beiðnir um fósturheimili voru 134 árið 2024 og 144 árið 2025. Árið 2024 voru í fyrsta sinn flestar beiðnir vegna styrkts fósturs, en árið 2025 voru aftur flestar beiðnir vegna tímabundins fósturs.
Beiðnir um varanlegt fóstur voru óvenju fáar árið 2023, en fjöldinn hefur síðan færst nær því sem tíðkast hefur undanfarin ár.
Frá árinu 2022 hefur Gæða- og eftirlitsstofnun farið með leyfisveitingar til fósturforeldra en Barna- og fjölskyldustofa veitir umsagnir vegna umsóknanna. Slíkum beiðnum fækkaði árið 2024 og voru þá 40 en fjölgaði aftur árið 2025 þegar þær voru alls 63.
Fleiri skýrslutökur vegna líkamlegs- og heimilisofbeldis
Rannsóknarviðtölum í Barnahúsi fækkaði árið 2024 samanborið við árið á undan en fjölgaði aftur árið 2025 og voru þá alls 296. Skýrslutökur fyrir dómi voru 186 árið 2025, sem er 31% aukning frá árinu á undan.
Árin 2024 og 2025 voru skýrslutökur vegna líkamlegs- og heimilisofbeldis fleiri en skýrslutökur vegna kynferðisofbeldis. Sú þróun hefur ekki sést áður. Könnunarviðtöl fyrir barnaverndarþjónustur voru færri en árin 2020–2023. Líkt og undanfarin ár voru stúlkur í meirihluta þeirra barna sem komu í rannsóknarviðtöl.
Óvenju margir vistunardagar á grundvelli 100. gr. laga um meðferð sakamála
Fjöldi vistana á lokaðri deild Stuðla hélt áfram að aukast og voru þær 225 árið 2024 og 240 árið 2025. Árið 2025 voru stúlkur í meirihluta þeirra barna sem dvöldu á deildinni, sem er breyting frá fyrri árum þegar drengir hafa jafnan verið fleiri.
Vistunardagar á grundvelli 100. gr. laga um meðferð sakamála voru áfram óvenju margir. Bæði árið 2024 og 2025 var fjöldi slíkra vistunardaga meiri en samanlagður fjöldi þeirra á árunum 2015–2023, sem undirstrikar verulega breytingu á umfangi þessa málaflokks.
Samantektina í heild má finna hér:
