Nýtt meðferðarheimili í Gunnarsholti hefur störf
6. mars 2026
Meðferðarheimilið Lækjarbakki hóf störf í nýju húsnæði í Gunnarsholti og tók á móti sínu fyrsta barni í dag. Opnunin markar mikilvægan áfanga í framhaldsmeðferð fyrir drengi sem glíma við vímuefnavanda.

Nýja meðferðarheimilið eykur getu samfélagsins til að bregðast við erfiðum og flóknum málum barna og ungmenna á Íslandi.
Hér má sjá frétt af vef Stjórnarráðsins um þetta mikilvæga skref.
