Fara beint í efnið
Barna- og fjölskyldustofa Forsíða
Barna- og fjölskyldustofa Forsíða

Barna- og fjölskyldustofa

Nýtt handleiðsluteymi Barna-og fjölskyldustofu eflir stuðning við börn í fóstri og fósturforeldra 

30. október 2026

Barna- og fjölskyldustofa hefur komið á fót nýju handleiðsluteymi innan fósturteymis í samræmi við framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar 2023–2027. Þjónustan er fyrst og fremst ætluð börnum sem þurfa sérstaka umönnun og þjálfun á fósturheimili í afmarkaðan tíma. Markmiðið er að stuðla að auknum stöðugleika í lífi barnanna og draga úr líkum á ótímabærum fósturlokum. 

Barna- og fjölskyldustofa hefur komið á fót nýju handleiðsluteymi innan fósturteymis í samræmi við framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar 2023–2027. Þjónustan er fyrst og fremst ætluð börnum sem þurfa sérstaka umönnun og þjálfun á fósturheimili í afmarkaðan tíma. Markmiðið er að stuðla að auknum stöðugleika í lífi barnanna og draga úr líkum á ótímabærum fósturlokum. 

Fósturforeldrar gegna lykilhlutverki í að styðja við þroska og líðan barnsins. Þeir fá handleiðslu og fræðslu sem miðar að því að efla færni þeirra og öryggi í daglegri umönnun. Þeir eiga reglulega fundi með sérfræðingi handleiðsluteymis og vinna með barninu að þeim markmiðum sem sett hafa verið í sameiningu.  

Vinnan tekur mið af þörfum, styrkleikum og aðstæðum hvers barns. Í upphafi eru sett skýr markmið og gerð áætlun um vinnuna. Hún felur meðal annars í sér samtöl við barnið og samvinnu við barnaverndarþjónustu. Unnið er með foreldrum, öðrum umönnunaraðilum og þjónustuaðilum eftir þörfum og markmiðum hvers máls. Framvinda er metin reglulega og stuðningurinn aðlagaður eftir því sem við á. Þegar stefnan er að því að barn snúi aftur til foreldra sinna eða flytjist í aðra varanlega búsetu er unnið að undirbúningi þess með foreldrum og öðrum lykilaðilum. Áhersla er lögð á að gagnlegar aðferðir, venjur og verkfæri fylgi barninu svo árangurinn viðhaldist. 

Sérfræðingur teymisins leiðir faglega vinnu þess í hverju máli og vinnur með barnaverndarþjónustu og öðrum þjónustuaðilum að samþættingu þjónustu í þágu farsældar barnsins. Barnaverndarþjónustan fer áfram með mál barnsins og heldur lögbundinni ábyrgð sinni en handleiðsluteymið veitir viðbótarstuðning.  

Í handleiðsluteyminu starfa félagsráðgjafarnir Berglind Ósk B. Filippíudóttir og Helga Katrín Hjartardóttir ásamt Særúnu Ósk Böðvarsdóttur, þroskaþjálfa og fötlunarfræðingi. Guðbjörg Gréta Steinsdóttir, teymisstjóri fósturteymis, leiðir starf teymisins. 

Við upphaf þjónstunnar verður unnið með afmarkaðan fjölda mála. Umfang hennar verður aukið í áföngum. Barnaverndarþjónusta sendir umsókn um greiðslur vegna sérstakrar umönnunar og þjálfunar áður en fóstrið hest. Við afgreiðslu umsóknarinnar er metið hvort handleiðsla teymisins eigi við í málinu.  

Nánari upplýsingar um þjónustuna, markhóp og umsóknarferlið má finna á heimasíðu BOFS. Fyrirspurnir má senda á fostur@bofs.is.