Fara beint í efnið
Barna- og fjölskyldustofa Forsíða
Barna- og fjölskyldustofa Forsíða

Barna- og fjölskyldustofa

Móttaka, menntun og farsælda barna með flóttabakgrunn

11. maí 2026

Miðvikudaginn 6. maí stóðu Barna- og fjölskyldustofa og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu fyrir fræðslufundi á Teams undir yfirskriftinni: „Móttaka, menntun og farsælda barna með flóttabakgrunn“

Mikill áhugi var á fundinum sem haldinn var á Teams, en um 350 manns frá ólíkum stofnunum velferðar- og menntamála um allt land, hlýddu á erindin. Fjöldi fundargesta sýnir greinileg þörf fyrir samtal, samræmingu og samvinnu um menntun og farsæld barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.

Alls voru flutt fimm erindi frá eftirtöldum aðilum: Barna- og fjölskyldustofu, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, Reykjavíkurborg, Hafnarfjarðarbæ og Akureyrarbæ. Erindin fjölluðu m.a. um móttöku barna með flóttabakgrunn í sveitarfélögum bæði inn í skólakerfinu og félagsþjónustu, hvernig kerfi innan sveitarfélaga vinna saman til að stuðla að farsæld barna með flóttabakgrunn, starf brúarsmiða og verkefni Reykjavíkurborgar sem stuðlar að sjálfseflingu og félagslegri þátttöku barna frá mið-austurlöndum.

Hér er hægt að horfa á erindin.