Innleiðing á Signs of Safety á fullu skriði
2. mars 2026
Innleiðing Signs of Safety hugmyndafræðinnar í barnavernd er á fullu skriði þessa dagana og fagfólk í barnavernd og öðru starfi með börnum hefur verið að fjölmenna á framhaldsnámskeið þar sem kafað er á dýptina í hugmyndafræðinni.
Barna- og fjölskyldustofa hefur undanfarnar þrjár vikur tekið á móti fjölda fagfólks á 5 daga framhaldsnámskeið í hugmyndafræðinni Signs of Safety. Fyrstu þrjú námskeiðin voru haldin í Sjálandi í Garðabæ en í þessari viku er fjórða námskeiðið haldið á KEA hótel á Akureyri. Vikuna 16.-20. mars verður haldið aftur í Garðabæinn en sjötta og síðasta námskeiðið í þessari lotu verður svo á Egilsstöðum 23.-27. mars.
Það er mikil og góð reynsla af þessari hugmyndafræði víða um heim. Þar sem hún hefur verið notuð hefur sýnt sig að hún færir fagfólki í barnavernd vinnulag og verkfæri í vinnu með börnum og fjölskyldum þeirra sem gagn er að.
