Heimsókn Umboðsmanns barna í Barnahús
23. apríl 2026
Þann 22. apríl sl. tók Barnahús á móti Salvöru Nordal, umboðsmanni barna, ásamt teymi lögfræðinga og ráðgjafa frá embætti Umboðsmanns barna.

Paola Cardenas, forstöðumaður Barnahúss, og Kristín Birna Björnsdóttir, sálfræðingur, kynntu starfsemi Barnahúss, hlutverk þess og þá samþættu þjónustu sem veitt er börnum sem hafa orðið fyrir ofbeldi eða verið vitni að því. Ræddar voru leiðir til að efla þjónustu enn frekar, framtíðarsýn Barnahúss og mikilvægi áframhaldandi samstarfs. Umboðsmaður barna og teymi hennar sýndu starfseminni mikinn áhuga og sköpuðust málefnalegar og áhugaverðar umræður.
Í heimsókninni kom jafnframt fram ósk frá teymi Umboðsmanns barna um fræðslu frá Barnahúsi um hvernig tala eigi við börn þegar grunur leikur á að þau hafi orðið fyrir ofbeldi. Stefnt er að því að bjóða upp á slíka fræðslu í haust.
