Fundur Barnahúss og ofbeldismóttöku barna á Landspítala
23. apríl 2026
Fulltrúar Barnahúss ásamt Funa Sigurðssyni, framkvæmdastjóra meðferðarsviðs Barna- og fjölskyldustofu áttu fund með teymi ofbeldismóttöku barna á Landspítala þann 22. apríl 2026.

Á fundinum kynntu Paola Cardenas, forstöðumaður Barnahúss, ásamt samstarfsfólki starfsemi og þjónustu Barnahúss. Jafnframt kynnti teymi ofbeldismóttöku barna þá þjónustu sem móttakan mun veita, en gert er ráð fyrir að starfsemi hennar hefjist í júní. Á fundinum var lögð áhersla á mikilvægi öflugs og samræmds samstarfs milli Barnahúss og ofbeldismóttöku barna, sem og kortlagningu þjónustuþarfa barna. Rætt var um mikilvægi skýrra ferla og gott upplýsingaflæði milli kerfa, þannig að börn sem eru þolendur ofbeldis og fjölskyldur þeirra fái samfellu og sem besta þjónustu.
Barnahús fagnar því að verið sé að efla þjónustu við þennan viðkvæma hóp barna og lítur á uppbyggingu ofbeldismóttöku barna sem mikilvæga viðbót við þá þjónustu sem Barnahús hefur veitt í nær 30 ár, í þverfaglegu samstarfi við fjölbreytta aðila sem koma að rannsókn og meðferð mála þegar grunur leikur á ofbeldi gegn barni.
