A Ferðalög
Ferðalög
Áhrif á blóðgjöf
Ferðalög / búseta utan Íslands, getur haft áhrif á hæfi blóðgjafa til að gefa blóð. Með því að fara ítarlega yfir ferðasögu blóðgjafa er hægt að lágmarka áhættu á að blóðbornir sjúkdómar smitist með blóðgjöf.
Frestur vegna ferðalaga er til að tryggja öryggi blóðþega þar sem veirur /sjúkdómar geta haft alvarlegar afleiðingar fyrir veikburða fólk.
Starfsfólk Blóðbankans gefur upplýsingar um hvaða lönd / svæði teljast vera áhættusvæði m.t.t. blóðgjafar.
Sjá nánar:
Undantekningar og athugasemdir
Byrja skal á að fara inná heimasíðu JPAC til að kanna hvort landið flokkast sem áhættusvæði fyrir blóðborna sjúkdóma og hvort blóðgjafi hafi verið veikur á ferðalaginu eða fljótlega eftir heimkomu.
Vegna ferðalaga á svæði þar Malaría er landlæg er frestur fyrir blóðgjöf 1 ár. Sjá nánari reglur um Malaría Hvernig á að lesa úr litum á Malariu korti - JAPC.
Vegna ferðalaga á svæði þar sem hitabeltis veirusýkingar eru landlægar, má gefa blóð 4 vikum eftir komu til Íslands og engin einkenni um smit eru til staðar. Sjá nánar um hverja veiru: Chikungunya - Dengue - Zika.
Vegna ferðalaga á svæði þar sem Chagas (Trypanosoma Cruzi) er landlæg. Frestur fyrir blóðgjöf er 6 mánuðir. Sjá nánar reglur varðandi Chagas: Chagas.
Frestur fyrir blóðgjöf vegna WNV er 4 vikur. Sjá nánar: ECDC, WNV.
Til að leita að ákveðnum svæðum eða bæjum er hægt að nota Dk kort til hliðsjónar.
Til að leita að nánari upplýsingum um Malaríu: WHO Malaría kort, Canadian - Malaría kort.
Til að leita að upplýsingum um Ebólu: Ebola, lesa nánar um Ebóla.
Sjá nánar um: Gulusótt.
Ath. Millilending á flugvelli þar sem ferðamaður yfirgefur ekki flugvöllinn telst ekki sem dvöl í viðkomandi landi. Ef farið gegnum malaríusvæði með lest eða bíl telst það sem áhætta.
Ath. Erlendis getur verið skimað fyrir fleiri sjúkdómum en hér á landi. Því geta verið mismunandi reglur um frávísanir vegna ferðalaga á milli landa.
Starfsfólk Blóðbankans gefur upplýsingar um hvaða lönd / landsvæði teljast vera áhættusvæði fyrir þessar veirusýkingar m.t.t. blóðgjafar. Einnig er hægt að kanna hvort landið flokkast sem áhættusvæði fyrir blóðborna sjúkdóma á heimasíðu: JPAC.
Lykilorð: Ferðalög, Lönd, Hitabeltissjúkdómar, veirur, veirusýking, moskítóbit, tropical disease, Chikungunya, Dengue, Zika, Gulusótt, yellow fever, frestur vegna ferðalaga
Gildir frá: 21. maí 2026
