Gulusótt (Mýgulusótt)
Áhrif á blóðgjöf
Vegna ferðalaga á svæði þar sem mýgulusótt (Yellow fever) er landlæg. Má gefa blóð 4 vikum eftir komu til Íslands og engin einkenni um smit eru til staðar.
Einstaklingur sem ferðast hefur til áhættusvæðis og greinst með veirusýkingu eða fengið einkenni smits: Frestur fyrir blóðgjöf er 6 mánuðir.
Þessi biðtími er nauðsynlegur til að tryggja öryggi blóðþega þar sem gulusótt getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir veikburða fólk.
Undantekningar og athugasemdir
Til fróðleiks:
Mýgulusótt eða gulusótt er veirusjúkdómur sem smitast með moskótóflugum og er landlægur víða í Afríku, í Mið- og Suður Ameríku. Útbreiðsla mýgulusóttar hefur verið að breytast og er mikilvægt að skoða áhættusvæði út frá ferðatilhögun hverju sinni.
Moskítóflugur sem dreifa veirunni finnast ekki á Íslandi og því ekki talin hætta á að smitast hér. Fólk sem ferðast til landa þar sem veiran fyrirfinnst getur verið útsett án þess að vita af því.
Starfsfólk Blóðbankans gefur upplýsingar um hvaða lönd / landsvæði teljast vera áhættusvæði fyrir þessar veirusýkingar m.t.t. blóðgjafa. Einnig er hægt að kanna hvort landið flokkast sem áhættusvæði fyrir blóðborna sjúkdóma á heimasíðu: JPAC
Lykilorð: Mýgulusótt, yellow fever, gul hitasótt, hitasótt, jungle fever, febris flava, moskító, smitsjúkdómur, Afríka, Suður Ameríka
Gildir frá: 27. febrúar 2026
