Fara beint í efnið
Blóðbankinn Forsíða
Blóðbankinn Forsíða

Blóðbankinn

Malaría

Áhrif á blóðgjöf

Til að tryggja öryggi blóðþega spyrjum við blóðgjafa hvort þeir hafi ferðast til svæða þar sem malaría er landlæg.

  • Einstaklingar án sjúkdómseinkenna sem hafa heimsótt malaríusvæði: Frestur fyrir blóðgjöf er 12 mánuðir.

  • Einstaklingur sem einhvern tímann á lífsleiðinni dvalið 6 mánuði eða lengur samfleytt á malaríusvæði: Taka þarf malaríusýni. Sýni má ekki taka fyrr en a.m.k. 4 mánuðir eru liðnir frá heimkomu frá áhættusvæði.

  • Sjá nánar:

Undantekningar og athugasemdir

Nánar:

  • Einstaklingar með sögu um malaríu: Frestur fyrir blóðgjöf er 3 ár frá því að meðferð er hætt ef engra sjúkdómseinkenna verður vart. Eftir það er aðeins veitt samþykki ef niðurstöður úr malaríusýni eru neikvæðar.

  • Einstaklingar sem hafa búið á malaríusvæði á fyrstu 5 árum ævinnar: Frestur fyrir blóðgjöf er 3 ár frá síðustu heimsókn til malaríusvæðis, svo fremi að viðkomandi sé laus við sjúkdómseinkenni.

  • Einstaklingar með sögu um hitasótt, (einkenni sem gætu átt við malaríu) sem ekki var greind, eftir heimsókn á malaríusvæði eða innan 6 mánuðir frá slíkri heimsókn: Frestur fyrir blóðgjöf er 3 ár frá því að sjúkdómseinkenni hverfa. Má stytta frest ef niðurstöður úr malaríusýni eru neikvæðar.

  • Malaríusýni /blóðprufu má ekki taka fyrr en a.m.k. 4 mánuðir eru liðnir frá heimkomu frá áhættusvæði. Blóðprufan er send til Danmerkur og það getur tekið allt að ár að fá niðurstöður.

  • Ef niðurstöður eru neikvæðar: Má gefa blóð.

  • Ef niðurstöður eru jákvæðar: Má ekki gefa blóð. Má taka sýni aftur eftir 3 ár til að athuga hvort mótefni mælist enn.

Til fróðleiks:

  • Malaría er sjúkdómur af völdum sníkjudýrs sem smitast með biti moskítóflugna. Moskítóflugurnar sem bera sníkjudýrið má finna á þessum svæðum: Afríku, Asíu, Mið-Ameríku og Suður-Ameríku.

  • Moskítóflugur sem dreifa veirunni finnast ekki á Íslandi og því ekki er talin hætta á að smitast á Íslandi. Fólk sem ferðast til landa þar sem veiran fyrirfinnst getur verið útsett án þess að vita af því.

  • Sníkjudýrið smitast ekki manna á milli, hvorki með úðasmiti né snertingu en getur smitast í blóði milli sýkts blóðgjafa til blóðþega.

  • Á Íslandi er ekki skimað fyrir Malaríu. Ef dvalist er 6 mánuði eða lengur á áhættusvæði fyrir Malaríu, þarf að taka blóðprufu.

Starfsfólk Blóðbankans gefur upplýsingar um hvaða lönd / landsvæði teljast vera áhættusvæði fyrir þessar veirusýkingar m.t.t. blóðgjafa. Einnig er hægt að kanna hvort landið flokkast sem áhættusvæði fyrir blóðborna sjúkdóma á heimasíðu: JPAC

Lykilorð: Malaría, Mýrarkalda

Gildir frá: 14. apríl 2026