Ekki er hægt að klára umsókn nema afrit af umbeðnum gögnum fylgi með sem viðhengi á pdf sniði.
Afrit vegabréfs.
Senda þarf afrit af síðum með persónuupplýsingum og rithandarsýnishorni. Gildistími skal vera minnst 90 dagar umfram fyrirhugaðan gildistíma dvalarleyfis.
Gögn sem staðfesta trygga framfærslu á dvalartíma.
Hægt er að sýna fram á framfærslu með einum eða fleiri þáttum. Upplýsingar um upphæð framfærslu og hvaða gögn geta sýnt fram á trygga framfærslu er að finna í umfjöllun um skilyrði.
Fylgigögn tiltekinna umsókna
Þjónustuaðili
Útlendingastofnun