Á heimaskjánum er hægt að bóka tíma í skimun undir Tímabókanir.
Smelltu á Bóka nýja tíma. Þar sérðu yfirlit yfir þjónustu sem hægt er að bóka í gegnum appið.
Smelltu á Brjóstaskimun. Þar ferð þú í bókunarferli þar sem valin er dagsetning og tími. Athugið að einnig er hægt að breyta tímanum og afbóka í gegnum Landspítala appið.
Instrukcje z polskimi napisami – Leiðbeiningar á pólsku:
Zaloguj się za pomocą elektronicznego dowodu tożsamości (rafræn skilríki).
Na ekranie głównym możesz umówić się na badanie przesiewowe w sekcji Tímabókanir (Rezerwacja wizyt).
Kliknij Bóka nýja tíma (Umów nową wizytę). Zobaczysz listę usług, które można zarezerwować za pośrednictwem aplikacji.
Kliknij Brjóstaskimun (Badanie przesiewowe piersi). Następnie wybierz odpowiednią datę i godzinę badania. Pamiętaj, że za pośrednictwem aplikacji Landspítali możesz również zmienić termin wizyty lub ją odwołać.
Panta tíma í brjóstaskimun
(Fylla þarf inn upplýsingar í alla stjörnumerkta reiti (*))
Vinsamlegast athugið að öllum er frjálst að mæta í skimun á Brjóstamiðstöð Landspítala í Reykjavík og á Akureyri óháð búsetu.
Brjóstaskimun er fyrir einkennalausar konur. Ef þú hefur tekið eftir einkennum frá brjóstum, ráðleggjum við þér að hafa samband við heilsugæsluna í síma 1700. Ef þú ert á einkarekinni heilsugæslu (Kirkjusandi, Höfða, Urðarhvarfi eða Salahverfi), hafðu þá beint samband við viðkomandi heilsugæslu. Hjúkrunarfræðingar munu meta einkennin og hvort þörf sé á flýtitíma hjá lækni. Ef niðurstaða skoðunar leiðir í ljós að þörf er á frekari rannsóknum er send tilvísun á Brjóstamiðstöð Landspítala.
Brjóstaskimun á landsbyggðinni
Teymi Brjóstamiðstöðvar Landspítala verður á ferðinni á eftirfarandi dögum í haust 2026 og vor 2027:
Ísafjörður 7. - 9. september
Þórshöfn 15. september
Vopnafjörður 16. september
Egilsstaðir 21. - 24. september
Eskifjörður 28. sept. - 1. október
Kirkjubæjarklaustur 6. október
Vík 7. október
Hvolsvöllur 12. - 13. október
Selfoss 2. - 12. nóvember
Reykjanesbær 16. - 26. nóvember
Borgarnes 1. - 11. mars 2027
Munið að bóka tíma. Tímapantanir fyrir allt landið fara fram í gegnum Brjóstamiðstöð Landspítala.
Sjúkrahúsið á Akureyri
Við bendum á að brjóstaskimun er í boði allt árið á Sjúkrahúsinu á Akureyri (Sak) og öllum er frjálst að mæta þar í skimun óháð búsetu.
Fyrri skimanir á landsbyggðinni
Vorið 2026 var skimað fyrir brjóstakrabbameini á þessum stöðum:
Blönduós, Húsavík, Sauðárkrókur og Vestmannaeyjar
Vorið 2025 var skimað fyrir brjóstakrabbameini á þessum stöðum: