Bókun í brjóstaskimun í Landspítalaappinu
Þú hefur fengið boð í brjóstaskimun.
Það er lítið mál að bóka tíma í Landspítalaappinu þar sem þú getur valið dag og tíma sem hentar þér. Athugaðu að tímabókanir í appinu eru að svo stöddu aðeins í boði fyrir skimun í Reykjavík.
Ef þú ert með einkenni frá brjóstum ættir þú að hafa samband í síma 1700 eða á netspjalli Heilsuveru fyrir forgangstíma í skoðun
Svona bókar þú skimun í appinu
Sæktu appið.
Sækja appið fyrir iPhone.
Sækja appið fyrir Android.
Skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum.
Smelltu á Samskipti á heimaskjá appsins.
Smelltu á Bóka tíma.
Þar sérðu yfirlit yfir þjónustu sem hægt er að bóka í gegnum appið.Smelltu á Brjóstaskimun.
Þar ferðu í bókunarferli þar sem þú getur valið dagsetningu og tíma.
Einnig er hægt að skanna QR kóðana til að finna Landspítalaappið í Google Play og App Store.

Aðrar leiðir til að bóka
Ef þú hefur ekki fengið boð í brjóstaskimun, ert með beiðni frá lækni vegna einkenna eða vilt ekki nota rafrænar bókunarleiðir þá getur þú pantað tíma með því að:
hringja í síma 543 9560, virka daga milli 9 og 15:30
senda tölvupóst: brjostaskimun@landspitali.is
Ef þú lendir í vandræðum, eða vilt koma upplýsingum á framfæri, vinsamlegast heyrðu okkur í síma 543 9560.
