Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun: Skipulagsmál
Hvernig get ég haft áhrif á skipulag og framkvæmdir?
Hægt er að hafa áhrif með því að fylgjast með málum í vinnslu og kynningu á Skipulagsgáttinni og gera athugasemdir við mál á kynningartíma. Í Skipulagsgátt birtast til samráðs og kynningar, öll mál er varða skipulagsmál og umhverfismat ásamt útgefnum framkvæmdaleyfum.
Ákvarðanir um nýja byggð og mannvirki geta haft í för með sér miklar breytingar áumhverfinu. Því er mikilvægt að sjónarmið almennings komi fram við gerð skipulags og við mat á umhverfisáhrifum framkvæmda. Samráð við almenning við gerð skipulags ræðst af viðfangsefni og umfangi skipulagsgerðar hverju sinni. Skipulagslög tryggja að vinna að skipulagi sé kynnt opinberlega og að almenningi sé gefið tækifæri til að fylgjast með og taka þátt í mótun tillagna um fyrirkomulagbyggðar og mótun umhverfis.
Við úrvinnslu allra mála er farið yfir allar athugasemdir af viðkomandi stjórnvaldi eða eftir atvikum framkvæmdaraðila og tekin afstaða til þeirra við endanlegaákvarðanatöku. Það er mismunandi eftir tegundum mála og málsstigum hvort ábyrgðaraðilum máls sé skylt að svara athugasemdum.
Almenningur getur komið að málum með því að upplýsa um staðhætti og aðstæður á því svæði sem er til umfjöllunar, komið að mótun hugmynda um útfærslu byggðar og framkvæmda, lagt til að aðrar útfærslur verði skoðaðar eða umhverfis metnar og gert athugasemdir sem lúta að áhrifum þeirra áforma sem kynnt hafa verið.
Það er líka hægt að koma hugmyndum um skipulagsmál á framfæri við skipulagsdeild viðkomandi sveitarfélags.
Finnurðu ekki það sem þig vantar?
Hvernig getum við aðstoðað?