Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun: Skipulagsmál

Hver ber ábyrgð á skipulagsgerð?

Skipulagsgerð er á ábyrgð sveitarfélaga. Skipulag er formleg, bindandi áætlun sveitarstjórnar um fyrirkomulag byggðar og mótun umhverfis.

Sveitarfélög vinna og samþykkja aðalskipulag, deiliskipulag og svæðisskipulag.

Landnotkun innan hvers sveitarfélags er mörkuð í aðalskipulagi. Sveitarstjórn er skylt að vinna aðalskipulag fyrir sitt sveitarfélag og ber ábyrgð á gerð þess. Skipulagsnefnd sveitarfélags annast gerð aðalskipulags í umboði sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn ber ábyrgð á gerð deiliskipulags, sem er nánari útfærsla á stefnu sveitarstjórnar sem sett er fram í aðalskipulagi. Skipulagsnefnd sveitarfélags annast gerð deiliskipulags í umboði sveitarstjórnar. Landeigandi eða framkvæmdaraðili getur óskað eftir því við sveitarstjórn að gerð sé tillaga að deiliskipulagi eða breytingu á deiliskipulagi á sinn kostnað. Sveitarstjórn getur einnig veitt landeiganda eða framkvæmdaraðila samkvæmt hans beiðni heimild til að vinna sjálfur að gerð deiliskipulags. Með samþykkt slíkrar tillögu gerir sveitarstjórn deiliskipulagið að sínu og ber ábyrgð á framfylgd þess. Gerð deiliskipulags eða breyting á deiliskipulagi að ósk landeiganda eða framkvæmdaraðila getur kallað á breytingu á aðalskipulagi sem er þá unnin áður eða samhliða.

Þar sem vinna á svæðisskipulag koma hlutaðeigandi sveitarstjórnir á fót sameiginlegri svæðisskipulagsnefnd. Hún annast vinnslu, kynningu og afgreiðslu svæðisskipulags undir yfirstjórn sveitarstjórnanna.

Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun

Hafðu samband

Netfang: hms@hms.is

Sími: 440 6400

Afgreiðslu­tími

Mánudaga til fimmtudaga
8:30 til 15:30

Föstudaga
9:00 til 14:00

Stað­setn­ingar

Borgartúni 21, 105 Reykjavík

Ártorgi 1, 550 Sauðárkróki

Hafnarstræti 107, 600 Akureyri

Kennitala: 581219-1480