Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun: Skipulagsmál

Hvaða framkvæmdir eru alltaf háðar umhverfismati?

Umhverfismat þarf alltaf að gera fyrir tilteknar stærri framkvæmdir.

Í lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 eru tilgreindir tveir flokkar framkvæmda, A og B.

Framkvæmdir í flokki A eru matsskyldar, þ.e. ávallt háðar umhverfismati. Það eru stærri framkvæmdir sem líklegar eru til að geta haft umtalsverð umhverfisáhrif. Meðal slíkra framkvæmda eru öll orkuver með 10 MW uppsett rafafl eða meira og efnistaka sem raskar 25 ha svæði eða stærra eða þar sem efnismagn er 500.000 m3 eða meira. Framkvæmdir í flokki B eru tilkynningarskyldar til HMS, sjá nánar svar við spurningu um tilkynningarskyldar framkvæmdir.

Yfirlit yfir framkvæmdir í flokkum A og B má finna í 1. viðauka við lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.

Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun

Hafðu samband

Netfang: hms@hms.is

Sími: 440 6400

Afgreiðslu­tími

Mánudaga til fimmtudaga
8:30 til 15:30

Föstudaga
9:00 til 14:00

Stað­setn­ingar

Borgartúni 21, 105 Reykjavík

Ártorgi 1, 550 Sauðárkróki

Hafnarstræti 107, 600 Akureyri

Kennitala: 581219-1480