Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun: Skipulagsmál
Hver er munurinn á umhverfismati framkvæmda og umhverfismati áætlana?
Umhverfismat framkvæmda felst í að meta og upplýsa um líkleg áhrif tiltekinna framkvæmda á umhverfið.
Umhverfismat áætlana felst í að meta áhrif tiltekinna áætlana á umhverfið.
Umhverfismat áætlana er hugsað sem undanfari mats á umhverfisáhrifum einstakra framkvæmda. Þegar metin eru umhverfisáhrif áætlunar, eins og til dæmis svæðis- eða aðalskipulags, gefst tækifæri til að leggja mat á víðtækari umhverfisáhrif þeirrar stefnu sem þar er sett fram og leggja mat á mismunandi valkosti, til dæmis um mismunandi staðsetningar- og legukosti. Við umhverfismat einstakra framkvæmda er síðan lagt ítarlegra mat á umhverfisáhrif viðkomandi framkvæmdar og nánari útfærslu hennar.
Finnurðu ekki það sem þig vantar?
Hvernig getum við aðstoðað?