Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun: Skipulagsmál
Hvaða framkvæmdir er skylt að tilkynna til HMS?
Framkvæmdir í flokki B samkvæmt lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 eru tilkynningarskyldar til HMS, en framkvæmdir sem skylt er að tilkynna eru líklegar til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif. Það er metið í hverju tilviki fyrir sig, með tilliti til eðlis, umfangs og staðsetningar, hvort
viðkomandi framkvæmd skuli háð umhverfismati.
Flokkur B tekur til framkvæmda sem liggja neðan viðmiðunarmarka í flokki A og fleiri tegunda framkvæmda sem kunna að geta haft umtalsverð umhverfisáhrif. Framkvæmdir í flokki B sem eru undir viðmiðunarmörkum sem tilgreind eru í viðauka við umhverfismatslögin eru einnig tilkynningarskyldar, ef þær eru fyrirhugaðar á verndarsvæði.
Yfirlit yfir framkvæmdir í flokkum A og B má finna í 1. viðauka við lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.
Finnurðu ekki það sem þig vantar?
Hvernig getum við aðstoðað?