Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun: Skipulagsmál

Hvar fæ ég upplýsingar um áformaðar framkvæmdir í mínu umhverfi?

Skipulagsgáttin er staðurinn til að fylgjast með þróun mála sem þig varða. Þar má finna upplýsingar um mál í vinnslu þ.e. skipulagsmál, umhverfismat framkvæmda og framkvæmdaleyfi í kynningu á vegum sveitarfélaga, annarra stjórnvalda og ýmissa framkvæmdaraðila um allt land.

Til að fylgjast með málum í götunni þinni, hverfinu þínu eða sveitarfélagi er auðvelt að leita uppi mál í næsta umhverfi. Hægt er að skoða öll mál með einföldum hætti á korti og vakta mál út frá ákveðinni staðsetningu. Jafnframt er hægt að fylgjast með þeim umsögnum og athugasemdum sem þegar hafa borist og viðbrögðum við þeim.

Það er líka hægt að leita eftir upplýsingum um skipulagsmál með því

Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun

Hafðu samband

Netfang: hms@hms.is

Sími: 440 6400

Afgreiðslu­tími

Mánudaga til fimmtudaga
8:30 til 15:30

Föstudaga
9:00 til 14:00

Stað­setn­ingar

Borgartúni 21, 105 Reykjavík

Ártorgi 1, 550 Sauðárkróki

Hafnarstræti 107, 600 Akureyri

Kennitala: 581219-1480