Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Rannsóknasjóður

Birting niðurstaðna, tilvísanir og merki

Í samræmi við lög um opinberan stuðning við vísindarannsóknir, skulu niðurstöður rannsókna sem styrktar eru af Rannsóknasjóði birtast í opnu aðgangi. Lög um opið aðgengi eiga aðeins við um birtingar niðurstaðna í ritrýndum vísindatímaritum.
Í birtingum skal tilgreina að verkefnið hafi verið styrkt af Rannsóknasjóði hafi verið styrkt af Rannsóknasjóði:
Þetta verkefni/rannsókn/útgáfa, nr. xxxxxx, er unnið með styrk frá Rannsóknasjóði.
This prjoect/study/work/publication, grant no. xxxxxx, was supported by the Icelandic Research Fund.og nota kennimerki sjóðsins.
Vinsamlegast kynnið ykkur reglur Rannís um varðveislusöfn.

Opið aðgengi

Styrkþegum standa tvær meginleiðir til boða að tryggja opið aðgengi, annars vegar að birta í tímaritum sem gefin eru út í opnu aðgengi, hins vegar í rafrænu varðveislusafni samhliða birtingu í hefðbundnu áskriftartímariti. Lokaútgáfa ritrýnds handrits skal send varðveislusafni um leið og greinin hefur verið samþykkt til birtingar. Ef tímaritið fer fram á biðtíma áður en greinin verður aðgengileg í opnu aðgengi verður hún birt sjálfkrafa að þeim tíma loknum.
Varðveislusafnið Opin vísindi tekur við greinum frá íslensku háskólunum.
Nánari upplýsingar má finna á slóðinni opinvisindi.is.

Kennimerki Rannsóknasjóðs

Kennimerki Rannsóknasjóðs er á eldra vefsvæði Rannsóknasjóðs

Fréttir Rannsóknasjóðs

Fréttir Rannsóknasjóðs eru á eldra vefsvæði Rannsóknasjóðs