Fara beint í efnið

Götulokanir í Reykjavík vegna Norðurlandaráðsþings

Dagana 28. – 31. október verður þing Norðurlandaráðs 2024 haldið í Reykjavík.

Lögreglan-fylgd

Þingið fer fram á Alþingi og í Ráðhúsi Reykjavíkur undir yfirskriftinni „Friður og öryggi á norðurslóðum“.

Þingið er stærsti norræni stjórnmálaviðburðurinn á árinu en þar koma saman 87 þingmenn Norðurlandaráðs, forsætisráðherrar, utanríkisráðherrar, samstarfsráðherrar Norðurlanda og ýmsir aðrir ráðherrar frá öllum Norðurlöndunum. Að auki kemur fjöldi gesta frá löndum utan Norðurlanda og verða gestir á þinginu rúmlega 600 í heild sinni. Nánari upplýsingar um þingið má finna hér: Þing Norðurlandaráðs 2024 - Friður og öryggi á norðurslóðum | Norrænt samstarf

Íslenska ríkið hefur ákveðnum skuldbindingum að gegna þegar tekið er á móti þjóðarleiðtogum erlendra ríkja. Öryggi þjóðarleiðtoga erlendra ríkja sem hingað koma er á ábyrgð íslenska ríkisins.

Götulokanir verða í miðborg Reykjavíkur og mikil öryggisgæsla í og við lokaða svæðið á meðan þingið stendur yfir. Lögregla mun sinna öryggisgæslu og verða þeir lögreglumenn sem koma að henni vopnaðir við störf sín.

Svör við ýmsum spurningum um verkefni lögreglu í tengslum við þingið má finna á þessari síðu ásamt gagnlegum upplýsingum um tímabundnar götulokanir og aðrar takmarkanir.