Götulokanir í Reykjavík vegna Norðurlandaráðsþings
Norðurlandaráðsþing – umferð
28. október 2024
Norðurlandaráðsþing hófst í dag og eins og vafalaust margir hafa tekið eftir. Viðbúnaður er mikill en hátt í 600 gestir sækja þingið.
Um 300 lögreglumenn standa vaktina meðan á þinginu stendur. Allt hefur gengið samkvæmt áætlun það sem af er degi og vill lögreglan sérstaklega þakka almenningi fyrir tillitssemi, skilning og þolinmæði í umferðinni í dag. Eins og greint hafði verið frá mátti búast við töfum þegar farið var um höfuðborgarsvæðið í dag og það varð raunin. Tafirnar voru þó ekki meiri en búist var við.
Norðurlandaráðsþingið heldur svo áfram á morgun og þá er líka viðbúið að tafir geti orðið í umferðinni, en þær ættu þó að verða í mun minna mæli en var í dag.