Fara beint í efnið

Ísland.is

Leiðtogafundur Evrópuráðsins

Dagana 16. og 17. maí 2023 fer leiðtogafundur Evrópuráðsins fram í Hörpu í Reykjavík.

Viðburðaríkir dagar vegna leiðtogafundar Evrópuráðsins

17. maí 2023

Viðburðaríkir dagar vegna leiðtogafundar Evrópuráðsins í Hörpu eru senn að baki.

20230517 135127

Um er að ræða risastórt verkefni, það langstærsta sem íslenska lögreglan hefur staðið frammi fyrir. Vel hefur tekist til og þakkar lögreglan öllum samstarfsaðilum fyrir ánægjulegt samstarf. Ekki síst þakkar hún almenningi fyrir þolinmæði og skilningi gagnvart þeim lokunum sem grípa þurfti til. Eins og við mátti búast urðu umferðartafir hér og þar síðdegis, en umferðin ætti að vera komin í samt lag þegar þetta birtist. Sama á við um miðborgina, en þar hefur verið hafist handa við að aflétta lokunum. Slíkt getur tekið einhverja klukkutíma og eru vegfarendur beðnir um að sýna því biðlund.

Eins og gefur að skilja hefur ekki verið mikið um pásur hjá lögreglumönnum þessa annasömu daga. Það á ekki síst við um lögreglumenn í umferðardeild, en hér hafa þrír þeirra þó náð að tylla sér eitt andartak, svona rétt áður en þeir þurftu að rjúka aftur af stað!