Fara beint í efnið

Ísland.is

Leiðtogafundur Evrópuráðsins

Dagana 16. og 17. maí 2023 fer leiðtogafundur Evrópuráðsins fram í Hörpu í Reykjavík.

Umferðartafir eru viðbúnar í dag 17.maí

17. maí 2023

Tímabundnar lokanir, einkum síðdegis.

20230516 164341

Lögreglan ítrekar að umtalsverðar umferðartafir eru viðbúnar á höfuðborgarsvæðinu í dag 17.maí vegna tímabundinna lokana, einkum síðdegis.

Þetta á líka við um vegfarendur sem hyggjast aka um Reykjanesbraut, það er á milli Suðurnesja og höfuðborgarsvæðisins - ekki síst flugfarþega.

Vegfarendur eru hvattir til að fara varlega og sýna þolinmæði.