Ísland.is
Leiðtogafundur Evrópuráðsins
Dagana 16. og 17. maí 2023 fer leiðtogafundur Evrópuráðsins fram í Hörpu í Reykjavík.
Þessi frétt er meira en árs gömul
Drónabann
12. maí 2023
Flug dróna verður með öllu óheimilt í miðborg Reykjavíkur, í kringum flugvelli og meðfram Reykjanesbraut frá 15. maí kl. 08:00 til 18. maí kl. 12:00.

Tilkynning um bann ríkislögreglustjóra við flugi dróna/fjarstýrðra loftfara á tilteknu svæði, sbr. 4. tl. 12. gr. reglugerðar um starfrækslu fjarstýrðra loftfara nr. 990/2017.
Flug dróna verður með öllu óheimilt í miðborg Reykjavíkur, í kringum flugvelli og meðfram Reykjanesbraut frá 15. maí kl. 08:00 til 18. maí kl. 12:00. Þessar ráðstafanir eru vegna öryggisgæslu í tengslum við leiðtogafund Evrópuráðsins.