Fara beint í efnið

Forsetakosningar 2024

Utankjörfundarkosning

Ef kjósendur geta ekki kosið á kjördag er hægt að kjósa utan kjörfundar.

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst eigi síðar en 2. maí. Hægt er að kjósa fyrir kjördag m.a. hjá sýslumönnum og erlendis.

Kosning á Íslandi – hjá sýslumanni

Kjósendur á Íslandi geta kosið hjá sýslumönnum og í sumum sveitarfélögum. Hér má sjá staðsetningar embætta sýslumanna. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu hefur sett upp kjörstaði á fjölförnum stöðum undanfarnar kosningar, líkt og í Smáralind eða Holtagörðum.

Kosning erlendis

Kjósendur þurfa að hafa samband við sendiráð eða ræðismann í viðkomandi landi til að vita hvar og hvenær er hægt að kjósa. Sýna þarf skilríki, til dæmis ökuskírteini eða vegabréf, þegar kosið er.

Hér má finna lista af íslenskum sendiráðum og ræðismönnum.

Ef kjósandi er í vafa um hvar og hvernig eigi að kjósa erlendis er best að hafa samband við borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins í gegnum hjalp@utn.is eða í síma +354 5459900.

Framkvæmd kosningar utan kjörfundar

Kjósandi gerir grein fyrri sér með skilríkjum eða á annan fullnægjandi hátt á kjörstað og fær afhent:

  • kjörseðil

  • umslag utan um kjörseðilinn

  • fylgibréf með kjörseðlinum

  • annað umslag fyrir póstsendingu

Kjörseðill við kosningu utan kjörfundar er auður, á honum eru ekki nöfn frambjóðenda. Kjósandi skrifar eða stimplar nafn þess forsetaframbjóðanda sem hann vill kjósa á seðilinn.

Fylgibréfið með kjörseðlinum, þar sem fram koma upplýsingar um kjósandann og hvert atkvæðið á að berast, þarf að vera undirritað af kjósanda og kjörstjóra.

Kjósandi ber ábyrgð á að koma atkvæðinu sínu á réttan stað. Hægt er að setja bréfið í póst, eða afhenda það einhverjum sem kjósandi felur að koma því til skila. Fram að kjördegi er kjörstjóra skylt, ef kjósandi óskar þess, að koma bréfinu í póst.

Kjósandi sem greiðir atkvæði hjá sýslumanni í umdæmi þar sem hann er á kjörskrá getur sett bréfið í atkvæðakassa þar.

Kosning inni á stofnunum

Við sérstakar aðstæður getur verið heimilt að kjósa inni á stofnunum, líkt og t.d.:

  • sjúkrahúsum

  • dvalarheimilum aldraðra

  • stofnunum fyrir fatlað fólk

  • fangelsum

Sýslumaður auglýsir hvar og hvenær hægt er að kjósa á viðeigandi stöðum.

Hér er hægt að skoða leiðbeiningar varðandi framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslu á sjúkrahúsi, dvalarheimilum, stofnunum fyrir fatlað fólk og í fangelsum.

Kosning í heimahúsi

Ef kjósandi getur ekki kosið á kjördegi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar er heimilt að kjósa í heimahúsi.

Sækja þarf skriflega um að fá að greiða atkvæði í heimahúsi til sýslumanns fyrir klukkan 10:00 tveimur dögum fyrir kjördag. Lögráða einstaklingur þarf að staðfesta hagi umsækjanda, þ.e. að viðkomandi geti ekki sótt kjörfund vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar. Hægt er að kjósa í fyrsta lagi þremur vikum fyrir kjördag. Ósk um að kjósa í heimahúsi þarf að berast til kjörstjóra í síðasta lagi tveimur dögum fyrir kjördag.

Forsetakosningar 2024

Lands­kjör­stjórn

Hafðu samband

Sími: 540 7500

postur@landskjorstjorn.is

Heim­il­is­fang

Tjarnargata 4

101 Reykjavík

kt. 550222-0510