Almyrkvi 12. ágúst 2026

Ný upplýsingagátt um almyrkvann
1. júní 2026
Ný upplýsingagátt um almyrkvann 12. ágúst er kominn í loftið á Ísland.is. Þar eru á einum stað upplýsingar um allt sem snertir almyrkvann og svör við spurningum sem kunna að brenna á fólki; hvar er best að fylgjast með almyrkvanum, hvenær verður hann og hvernig á að bera sig að þegar fylgst er með honum en líka hvort og hvar verður gripið til takmarkana á umferð og hvaða götur verða lokaðar.
Ný upplýsingagátt um almyrkvann 12. ágúst er kominn í loftið á Ísland.is. Þar eru á einum stað upplýsingar um allt sem snertir almyrkvann og svör við spurningum sem kunna að brenna á fólki; hvar er best að fylgjast með almyrkvanum, hvenær verður hann og hvernig á að bera sig að þegar fylgst er með honum en líka hvort og hvar verður gripið til takmarkana á umferð og hvaða götur verða lokaðar. Einnig verða þar tenglar á frekari upplýsingar, meðal annars á viðbragðsaðila og markaðsstofur landshluta á almyrkvasvæðinu sem hafa unnið með sveitarfélögum að undirbúningi fyrir almyrkvann.
Vefurinn verður uppfærður reglulega fram að almyrkvanum. Fólk er hvatt til að fylgjast með þeim leiðbeiningum sem þar birtast til að geta undirbúið sig sem best fyrir daginn. Stýrihópur sem forsætisráðherra skipaði hefur unnið að því að safna upplýsingunum saman.
Þann 12. ágúst má reikna með álagi á samgöngur, útivistarsvæði og viðbragðsaðila. Íbúar á suðvesturhorni landsins eru í þeirri einstöku stöðu að geta fylgst með almyrkvanum heima frá sér. Þeir eru hvattir til að nýta það tækfæri og leggja um leið sitt af mörkum til að takmarka umferð og stuðla að almannaöryggi.
Þá hefur verið skrifað undir samning við Sævar Helga Bragason (Stjörnu-Sævar), jarðfræðing og vísindamiðlara, um að hann verði stjórnvöldum til ráðgjafar varðandi fræðslu og miðlun upplýsinga um almyrkvann og undirbúning stjórnvalda.