Almyrkvi 12. ágúst 2026

Flestir ætla að fylgjast með almyrkvanum frá heimili sínu
7. júlí 2026
Átta af hverjum tíu landsmönnum ætla að fylgjast með almyrkva á sólu eða hafa áhuga á því. Algengast er að fólk ætli að fylgjast með almyrkvanum frá heimili sínu eða í næsta nágrenni.

Gallup kannaði í síðasta mánuði ferðahegðun landsmanna í tengslum við almyrkvann fyrir Ferðamálastofu. Sambærilegar spurningar voru lagðar fyrir í janúar. Fleiri hafa ákveðið hvernig þeir ætla að fylgjast með almyrkvanum en höfðu gert í janúar.
Átta af hverjum tíu sögðust ætla að fylgjast með eða hafa áhuga á því. 43 prósent ætluðu að gera það frá sínu heimili eða í næsta nágrenni en rúm 6 prósent ætla að ferðast sérstaklega. Vestfirðir og Vesturland eru vinsælustu áfangastaðirnir hjá þeim sem ætla að ferðast en færri nefndu höfuðborgarsvæðið eða Reykjanes.
Búast má við töluverðri umferð dagana fyrir og eftir almyrkvann og hefur verið mælst til þess að fólk njóti þessa sögulega atburðar frá sínu heimili eða nærumhverfi. Þau sem hyggja á ferðalög til að fylgjast með náttúrufyrirbærinu eru hvött til að skipuleggja sig vel.
Nánar er hægt að lesa um könnunina á vef Ferðamálastofu.