Almyrkvi 12. ágúst 2026

Fjarskiptaöryggi við Látrabjarg styrkt vegna almyrkvans
5. júní 2026
Innviðaráðuneytið hefur ákveðið að styrkja sérstaklega úrbætur á afköstum og útbreiðslu farnetskerfa við Látrabjarg vegna almyrkvans 12. ágúst næstkomandi.

Búist er við miklum fjölda fólks á þeim svæðum landsins þar sem almyrkvi á sólu verður mestur og varir lengst 12. ágúst næstkomandi. Þar á meðal eru Reykjanes, Vesturland og Snæfellsnes og Vestfirðir. Mikill fjöldi gesta getur skapað verulegt en tímabundið álag á innviði á þessum svæðum, ekki síst farnetskerfi.
Farnetsfyrirtækin undirbúa nú ýmsar ráðstafanir á Snæfellsnesi og Reykjanesi til að mæta auknu álagi vegna sólmyrkvans. Staðan við Látrabjarg er hins vegar viðkvæmari, þar sem fyrirhuguð uppbygging fjarskiptainnviða á svæðinu hefur tafist. Þar er því þörf á umfangsmeiri og kostnaðarsamari úrbótum til að auka afköst og útbreiðslu farnets í tæka tíð.
Innviðaráðuneytið hefur því, á grundvelli tillögu frá Öryggisfjarskiptum, ákveðið að styrkja sérstaklega úrbætur á afköstum og útbreiðslu farnetskerfa við Látrabjarg vegna almyrkvans.
„Nauðsynlegt er að ráðast í uppfærslu á fyrirliggjandi fjarskiptainnviðum þar sem ekki næst að ljúka lagningu rafstrengja og ljósleiðara á svæðinu í tæka tíð. Fjarskiptaöryggi á svæðinu við Látrabjarg þar sem álagið verður sem mest verður styrkt með aðkomu farnetsfyrirtækja og stuðningi ráðuneytisins,“ segir Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra.
Aðgerðirnar miða að því að bæta afköst og útbreiðslu fyrirliggjandi farnetssenda, styðja við viðbúnað viðbragðsaðila og draga úr líkum á alvarlegum truflunum í farnetsþjónustu á svæðinu.
Símtöl í Neyðarlínuna hafa forgang
Rétt er að árétta að símtöl í Neyðarlínuna, 112, hafa ætíð forgang í farnetskerfum hér á landi umfram aðra fjarskiptaumferð. Þrátt fyrir þann forgang er mikilvægt að styrkja fjarskiptainnviði þar sem búast má við óvenjumiklu álagi, bæði til að tryggja sem besta þjónustu við almenning og styðja við störf viðbragðsaðila.