Umboð og aðgangsstýring á Ísland.is
Afturkalla umboð sem þú hefur veitt öðrum
Ef þú hefur veitt öðrum aðgang að Mínum síðum getur þú alltaf afturkallað umboðið með nokkrum einföldum skrefum.
Þú skráir þig inn á Mínar síður með þínum persónulegu rafrænu skilríkjum.
Ef þú vilt afturkalla umboð fyrirtækis sem þú stýrir þarftu næst að skipta yfir á aðgang fyrirtækisins. Það er gert með því að smella á nafnið þitt uppi í hægra horni, velja Skipta um notanda og skráð þig inn sem fyrirtækið.
Velur Aðgangsstýring í efnisyfirliti á vinstri hlið.
Velur þann einstakling sem á að afturkalla umboðið hjá og eyðir umboði.
Einstaklingurinn sem áður hafði umboð mun ekki lengur getað skráð sig inn fyrir hönd þess sem hann hafði umboð fyrir.
Þjónustuaðili
Stafrænt Ísland