Fara beint í efnið

Meðferð persónuupplýsinga hjá sýslumönnum eftir málaflokkum

Vanrækslugjald

Ábyrgðaraðili vinnslu

Sýslumenn eru ábyrgðaraðilar fyrir vinnslu þeirra persónuupplýsinga sem aflað er á eyðublöðum undir flokknum vanrækslugjald. Sýslumenn notast ekki við sjálfvirka ákvörðunartöku við vinnslu persónuupplýsinga vegna vanrækslugjalda.

Tilgangur og heimildir fyrir vinnslu

Með eyðublöðunum er bæði aflað almennra og viðkvæmra persónuupplýsinga. Tilgangur vinnslu þeirra persónuupplýsinga sem aflað er frá hinum skráða með eyðublöðum er að sinna lögbundnum skyldum sýslumanna í tengslum við álagningu vanrækslugjalds. Heimildir fyrir vinnslu upplýsinganna koma fram í 3. tl. 1. mgr. 9. gr. og e.a. 1. tl. mgr. 11. gr. laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Mælt er fyrir um lagaskyldur sýslumanna í tengslum við meðferð lögráðamála í lögræðislögum nr. 71/1997. Til þess að unnt sé að vinna beiðnir þarf að veita allar umbeðnar upplýsingar, nema einstaka liðir eigi ekki við. Vakin er athygli á að skortur á upplýsingum kann að hafa áhrif á niðurstöðu máls.

Miðlun persónuupplýsinga

Persónuupplýsingum sem aflað er í tengslum við álagningu vanrækslugjalds er miðlað til aðila máls, sbr. 15. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Komi til innheimtu gjaldsins er upplýsingum um álagningu miðlað til sýslumanns í því umdæmi sem skráði er með lögheimili í formi aðfarar- og e.a. nauðungarsölubeiðni á grundvelli fullnusturéttarfars. Í tengslum við innheimtu gjaldsins kann að koma til þess að upplýsingar um álagningu sé birtar í Lögbirtingablaðinu á grundvelli 7. mgr. 74. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

Geymslutími

Samkvæmt lögum nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn eru öll skjöl geymd hjá sýslumanni í 30 ár og rafræn gögn í 5 ár áður en þau eru send til Þjóðskjalasafns til varðveislu.

Réttindi skráðra einstaklinga

Skráðir einstaklingar eiga almennt rétt til upplýsinga um vinnslu, hvort sem persónuupplýsinga er aflað hjá þeim sjálfum eða ekki, svo og rétt til aðgangs að persónuupplýsingum um sig. Þeir eiga jafnframt rétt á að fá óáreiðanlegar persónuupplýsingar um sig leiðréttar svo og rétt til að ábyrgðaraðilinn eyði persónuupplýsingum um hann án ótilhlýðilegrar tafar (réttur til að gleymast) og rétt til að ábyrgðaraðili takmarki vinnslu. Beina má kvörtun vegna vinnslu persónuupplýsinga til Persónuverndar. Persónuverndarstefnu sýslumanna og upplýsingar um persónuverndarfulltrúa þeirra er að finna hér á vef sýslumanna.

Þjónustuaðili

Sýslu­menn

Sýslumenn

Höfuð­borg­ar­svæðið

Mán. til fim. 8:30 - 15
Fös. 8:30 - 14

Vest­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Vest­firðir

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 13:30

Norð­ur­land vestra

Mán. til fös. 9 - 15

Norð­ur­land eystra

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Aust­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9-14

Suður­land

Mán. til fös. 9 - 15

Vest­manna­eyjar

Mán. til fim. 9:15 - 15
Fös. 9:15 - 14

Suðurnes

Mán. til fös. 8:30 - 15