Fara beint í efnið

Ábyrgðaraðili vinnslu

Sýslumenn eru ábyrgðaraðilar fyrir vinnslu þeirra persónuupplýsinga sem aflað er á eyðublöðum undir flokknum innheimta opinberra gjalda. Sýslumenn notast ekki við sjálfvirka ákvörðunartöku við vinnslu persónuupplýsinga vegna innheimtu opinberra gjalda.

Tilgangur og heimildir fyrir vinnslu

Með eyðublöðunum er einungis aflað almennra persónuupplýsinga. Tilgangur vinnslu þeirra persónuupplýsinga sem aflað er frá hinum skráða með eyðublöðum er að sinna lögbundnum skyldum sýslumanna í tengslum við innheimtu opinberra gjalda. Heimildir fyrir vinnslu almennra persónuupplýsinga koma fram í 3. tl. 1. mgr. 9. gr. Mælt er fyrir um lagaskyldur sýslumanna í tengslum við innheimtu opinberra gjalda í lögum nr. 150/2019 um innheimtu opinberra skatta og gjalda. Þau eyðublöð sem um ræðir eru umboð gjaldanda til annars aðila til að koma fram fyrir sína hönd í samskiptum við innheimtumann. Til þess að innheimtumanni sé unnt að miðla upplýsingum til þriðja manns á grundvelli umboðs þarf að veita allar umbeðnar upplýsingar.

Miðlun persónuupplýsinga

Persónuupplýsingum, sem aflað er í tengslum við meðferð innheimtumála, er miðlað til aðila máls, sbr. 15. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Geymslutími

Samkvæmt lögum nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn eru öll skjöl geymd hjá sýslumanni í 30 ár og rafræn gögn í 5 ár áður en þau eru send til Þjóðskjalasafns til varðveislu.

Réttindi skráðra einstaklinga

Skráðir einstaklingar eiga almennt rétt til upplýsinga um vinnslu, hvort sem persónuupplýsinga er aflað hjá þeim sjálfum eða ekki, svo og rétt til aðgangs að persónuupplýsingum um sig. Þeir eiga jafnframt rétt á að fá óáreiðanlegar persónuupplýsingar um sig leiðréttar svo og rétt til að ábyrgðaraðilinn eyði persónuupplýsingum um hann án ótilhlýðilegrar tafar (réttur til að gleymast) og rétt til að ábyrgðaraðili takmarki vinnslu. Beina má kvörtun vegna vinnslu persónuupplýsinga til Persónuverndar. Persónuverndarstefnu sýslumanna og upplýsingar um persónuverndarfulltrúa þeirra er að finna hér á vef sýslumanna.

Þjónustuaðili

Sýslu­menn

Sýslumenn

Höfuð­borg­ar­svæðið

Mán. til fim. 8:30 - 15
Fös. 8:30 - 14

Vest­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Vest­firðir

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 13:30

Norð­ur­land vestra

Mán. til fös. 9 - 15

Norð­ur­land eystra

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Aust­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9-14

Suður­land

Mán. til fös. 9 - 15

Vest­manna­eyjar

Mán. til fim. 9:15 - 15
Fös. 9:15 - 14

Suðurnes

Mán. til fös. 8:30 - 15