Fara beint í efnið

Ábyrgðaraðili vinnslu

Sýslumenn eru ábyrgðaraðilar fyrir vinnslu þeirra persónuupplýsinga sem aflað er á eyðublöðum undir flokknum fasteignir. Sýslumenn notast ekki við sjálfvirka ákvörðunartöku við vinnslu persónuupplýsinga vegna fasteigna.

Tilgangur og heimildir fyrir vinnslu

Með eyðublöðunum er einungis varðveittar almennar persónuupplýsingar. Tilgangur vinnslu þeirra persónuupplýsinga sem mótteknar eru frá hinum skráða með eyðublöðum er að sinna leiðbeiningaskyldu stjórnvalds samkvæmt stjórnsýslulögum nr. 37/1993. Heimildir fyrir vinnslu upplýsinganna koma fram 1. tl. 1. mgr. 9. gr. laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.

Miðlun persónuupplýsinga

Persónuupplýsingum sem aflað er með eyðublöðunum er miðlað í þinglýsingabók.

Geymslutími

Samkvæmt lögum nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn eru öll skjöl geymd hjá sýslumanni í 30 ár og rafræn gögn í 5 ár áður en þau eru send til Þjóðskjalasafns til varðveislu.

Réttindi skráðra einstaklinga

Skráðir einstaklingar eiga almennt rétt til upplýsinga um vinnslu, hvort sem persónuupplýsinga er aflað hjá þeim sjálfum eða ekki, svo og rétt til aðgangs að persónuupplýsingum um sig. Þeir eiga jafnframt rétt á að fá óáreiðanlegar persónuupplýsingar um sig leiðréttar svo og rétt til að ábyrgðaraðilinn eyði persónuupplýsingum um hann án ótilhlýðilegrar tafar (réttur til að gleymast) og rétt til að ábyrgðaraðili takmarki vinnslu. Beina má kvörtun vegna vinnslu persónuupplýsinga til Persónuverndar. Persónuverndarstefnu sýslumanna og upplýsingar um persónuverndarfulltrúa þeirra er að finna hér á vef sýslumanna.

Þjónustuaðili

Sýslu­menn

Sýslumenn

Höfuð­borg­ar­svæðið

Mán. til fim. 8:30 - 15
Fös. 8:30 - 14

Vest­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Vest­firðir

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 13:30

Norð­ur­land vestra

Mán. til fös. 9 - 15

Norð­ur­land eystra

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Aust­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9-14

Suður­land

Mán. til fös. 9 - 15

Vest­manna­eyjar

Mán. til fim. 9:15 - 15
Fös. 9:15 - 14

Suðurnes

Mán. til fös. 8:30 - 15