Fara beint í efnið
Vinnumálastofnun Forsíða
Vinnumálastofnun Forsíða

Vinnumálastofnun

Atvinnuleysi á Suðurnesjum undir viðmiðunarmörkum – sértæku átaki lýkur

19. júní 2026

Frá 1. júlí fellur niður sérstök viðmiðunarregla um ráðningarstyrki og almenn skilyrði taka aftur gildi á Suðurnesjum.

Samkvæmt mánaðarskýrslu Vinnumálastofnunar fyrir maí 2026 er skráð atvinnuleysi á Suðurnesjum komið niður í 6,5%. Við þær aðstæður eru ekki lengur fyrir hendi forsendur fyrir sértæku átaksverkefni á svæðinu, samkvæmt reglugerð um vinnumarkaðsúrræði.

Þetta hefur í för með sér að frá og með 1. júlí 2026 fellur niður eftirfarandi sérstök viðmiðunarregla:
Þegar atvinnuleysi á landsvísu eða á tilteknu svæði fer yfir 6,5% breytast viðmið um greiðslur ráðningarstyrkja með þeim hætti að, hafi atvinnuleitandi verið skráður í atvinnuleit í að minnsta kosti einn mánuð, getur atvinnurekandi fengið styrk sem nemur 100% grunnatvinnuleysisbótum, auk 11,5% mótframlags í lífeyrissjóð.

Frá sama tíma taka aftur gildi almenn ákvæði reglugerðar um vinnumarkaðsúrræði varðandi greiðslur ráðningarstyrkja á Suðurnesjum. Það felur meðal annars í sér að atvinnuleitandi þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði til að koma til greina í úrræðið:

  • Teljast tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar og eiga rétt á atvinnuleysisbótum við upphaf þátttöku.

  • Hafa verið í virkri atvinnuleit og skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun í að minnsta kosti þrjá mánuði frá atvinnumissi.

Nánari upplýsingar um skilyrði og framkvæmd ráðningarstyrkja er að finna í reglugerð um vinnumarkaðsúrræði og á vef Vinnumálastofnunar.