Ótímabundið leyfi
Þú hefur sótt um ótímabundið dvalarleyfi
Umsækjendur um dvalarleyfi geta því miður ekki skráð sig inn á vef Útlendingastofnunar til að fá upplýsingar um stöðuna á umsókn sinni.
Á upplýsingasíðu um stöðu mála og afgreiðslutíma getur þú fylgst með því hvaða umsóknir er verið að taka til vinnslu út frá upplýsingum um hvenær umsóknir voru lagðar fram. Umsóknir sem bárust síðar en í þeim mánuði sem tiltekinn er á síðunni bíða þess að verða teknar til vinnslu.
Á meðan umsóknir bíða þess að verða teknar til vinnslu fást ekki frekari upplýsingar varðandi umsóknina í síma, tölvupósti eða netspjalli.
Ekki er hægt að segja nákvæmlega til um hversu lengi þú þarft að bíða eftir svari við umsókn um ótímabundið dvalarleyfi. Margt hefur áhrif á biðtímann, til dæmis hversu margar umsóknir bíða afgreiðslu hjá Útlendingastofnun, hvort þú hafir lagt fram fullbúna umsókn eða hvort við þurfum að óska eftir frekari upplýsingum frá þér.
Árið 2025 var meðalafgreiðslutími samþykktra umsókna um ótímabundið dvalarleyfi 8,5 mánuðir.
Nei það er ekki hægt að óska eftir flýtimeðferð.
Fullbúnar umsóknir, sem lagðar eru fram með öllum nauðsynlegum fylgigögnum á því formi sem krafist er, er hægt að afgreiða hraðar.
Afgreiðslutíminn getur lengst ef:
umsókn hefur ekki verið fyllt út nægilega vel,
kalla þarf eftir frekari gögnum,
boða þarf umsækjanda í viðtal eða
umsækjandi hefur óskað eftir undanþágu frá skilyrðum.
Til að draga umsókn til baka þarftu að hafa samband við Útlendingastofnun.
Upplýsingar um nafn, fæðingardag og netfangið sem þú skráðir í umsóknina þína þurfa að koma fram í erindinu.
Afgreiðslugjald er ekki endurgreitt þótt þú hættir við umsókn.
Viðbótargögn, sem ekki þurfa að vera í frumriti, má senda með tölvupósti á utl@utl.is. Gögnin þurfa að vera merkt með fullu nafni umsækjanda og fæðingardegi.
Gögn sem leggja þarf fram í frumriti á pappír getur þú sent í pósti til Útlendingastofnunar að Dalvegi 18 í Kópavogi, afhent í afgreiðslu eða lagt í skilakassa í anddyri.
Til að láta vita um breytingar hjá þér, til dæmis nýtt heimilisfang, símanúmer eða netfang, þarftu að hafa samband við Útlendingastofnun.
Þú ættir einnig að láta okkur vita um nýjar upplýsingar sem gætu haft áhrif á umsókn þína, til dæmis ef þú hefur fengið nýtt vegabréf, gengið í hjónaband eða eignast barn.