Endurnýjun
Þú hefur sótt um endurnýjun dvalarleyfis
Umsækjendur um dvalarleyfi geta því miður ekki skráð sig inn á vef Útlendingastofnunar til að fá upplýsingar um stöðuna á umsókn sinni.
Á upplýsingasíðu um stöðu mála og afgreiðslutíma getur þú fylgst með því hvaða umsóknir er verið að taka til vinnslu út frá upplýsingum um hvenær umsóknir voru lagðar fram. Umsóknir sem bárust síðar en í þeim mánuði sem tiltekinn er á síðunni bíða þess að verða teknar til vinnslu.
Á meðan umsóknir bíða þess að verða teknar til vinnslu fást ekki frekari upplýsingar varðandi umsóknina í síma, tölvupósti eða netspjalli.
Ekki er hægt að segja nákvæmlega til um hversu lengi þú þarft að bíða eftir svari við umsókn um endurnýjun dvalarleyfis. Margt hefur áhrif á biðtímann, til dæmis hversu margar umsóknir bíða afgreiðslu hjá Útlendingastofnun, hvort þú hafir lagt fram fullbúna umsókn eða hvort við þurfum að óska eftir frekari upplýsingum frá þér.
Árið 2025 var meðalafgreiðslutími samþykktra umsókna um endurnýjun dvalarleyfis 2,5 mánuðir.
Nei það er ekki hægt að óska eftir flýtimeðferð.
Fullbúnar umsóknir, sem lagðar eru fram með öllum nauðsynlegum fylgigögnum á því formi sem krafist er, er hægt að afgreiða hraðar.
Afgreiðslutíminn getur lengst ef:
umsókn hefur ekki verið fyllt út nægilega vel,
kalla þarf eftir frekari gögnum,
boða þarf umsækjanda í viðtal eða
umsækjandi hefur óskað eftir undanþágu frá skilyrðum.
Til að draga umsókn til baka þarftu að hafa samband við Útlendingastofnun.
Upplýsingar um nafn, fæðingardag og netfangið sem þú skráðir í umsóknina þína þurfa að koma fram í erindinu.
Afgreiðslugjald er ekki endurgreitt þótt þú hættir við umsókn.
Viðbótargögn, sem ekki þurfa að vera í frumriti, má senda með tölvupósti á utl@utl.is. Gögnin þurfa að vera merkt með fullu nafni umsækjanda og fæðingardegi.
Gögn sem leggja þarf fram í frumriti á pappír getur þú sent í pósti til Útlendingastofnunar að Dalvegi 18 í Kópavogi, afhent í afgreiðslu eða lagt í skilakassa í anddyri.
Til að láta vita um breytingar hjá þér, til dæmis nýtt heimilisfang, símanúmer eða netfang, þarftu að hafa samband við Útlendingastofnun.
Þú ættir einnig að láta okkur vita um nýjar upplýsingar sem gætu haft áhrif á umsókn þína, til dæmis ef þú hefur fengið nýtt vegabréf, gengið í hjónaband eða eignast barn.
Ef þú sóttir um endurnýjun dvalarleyfis innan gildistíma fyrra leyfis þá máttu halda áfram að vinna á meðan umsókn um endurnýjun er í vinnslu. Þetta á einnig við þótt dvalarleyfið þitt renni út áður en umsókn um endurnýjun er samþykkt.
Ef þú þarft atvinnuleyfi til að mega starfa á Íslandi þá máttu aðeins halda áfram að vinna hjá sama vinnuveitanda og fyrra atvinnuleyfi var veitt til á meðan þú ert á milli leyfa. Þú mátt ekki byrja að vinna hjá nýjum vinnuveitanda fyrr en atvinnuleyfi hefur verið veitt á grundvelli þeirrar ráðningar.
Ef þú þarft ekki atvinnuleyfi til að mega starfa á Íslandi þá máttu vinna hjá hvaða vinnuveitanda sem er á meðan umsókn um endurnýjun er í vinnslu. Á dvalarleyfiskortinu þínu þarf að standa „atvinnuþátttaka heimil“ svo þetta eigi við.
Útlendingstofnun mælir með því að þú ferðist ekki erlendis á meðan umsókn þín um endurnýjun er óafgreidd.
Gilt dvalarleyfiskort er eina staðfestingin á því að útlendingur sé með dvalarleyfi á Íslandi og hafi þar af leiðandi heimild til að ferðast innan Schengen-svæðisins og inn og út af Schengen-svæðinu. Útlendingastofnun getur ekki gefið út skjal til að gera þér kleift að ferðast erlendis á meðan þú átt ekki gilt dvalarleyfiskort.
Útlendingastofnun getur ekki hjálpað þér ef þú lendir í vandræðum á landamærum erlendis og ert ekki með gilt dvalarleyfi. Ferðalög erlendis eru því alfarið á þína ábyrgð.