Yfirlýsing vegna brots á persónuvernd og þagnarskyldu
7. janúar 2026
Þann 18. desember fékk Útlendingastofnun upplýsingar um alvarlegt brot starfsmanns stofnunarinnar á lögum um persónuvernd og þagnarskyldu opinberra starfsmanna. Starfsmaðurinn hefur lokið störfum hjá stofnuninni.

Frá því málið kom upp hefur verið farið yfir allar ákvarðanir sem viðkomandi starfsmaður hafði aðkomu að á meðan hann starfaði hjá stofnuninni. Þetta var gert til að ganga úr skugga um að verkferlum sem eiga að tryggja gæði ákvarðana hafi verið fylgt í hvívetna. Á meðal þess sem það felur í sér er að allar stjórnvaldsákvarðanir stofnunarinnar skuli lesnar yfir og staðfestar af yfirmanni og því komi ávallt fleiri en einn starfsmaður að hverri ákvörðun. Við yfirferð umræddra mála kom ekkert fram sem gefur tilefni til að endurskoða eða taka upp að nýju ákvarðanir sem starfsmaðurinn hafði aðkomu að. Ekkert bendir heldur til þess að viðkomandi hafi áður viðhaft slíka háttsemi og gengur stofnunin út frá því að um einangrað tilvik sé að ræða.
Í samvinnu við persónuverndarfulltrúa stofnunarinnar var brotið tilkynnt sem öryggisbrestur til Persónuverndar og hefur ákvæðum um meðferð slíkra mála verið fylgt til hins ítrasta. Persónuvernd hefur jafnframt hafið frumathugun á öryggi við vinnslu persónuupplýsinga hjá Útlendingastofnun í því skyni að afla upplýsinga og gagna til athugunar á því hvort tilefni sé til að hefja úttekt eða frumkvæðisathugun á vinnslunni.
Í ljósi alvarleika málsins hefur Útlendingastofnun einnig tilkynnt brot starfsmannsins til lögreglu.
„Ég geri þá kröfu að starfsfólk Útlendingastofnunar standi undir þeirri ábyrgð sem fylgir meðhöndlun viðkvæmra persónuupplýsinga. Traustið sem skjólstæðingar okkar sýna okkur byggir á því, og ég vil vera skýr um að brot á trúnaði verða ekki liðin innan stofnunarinnar.“ – Kristín Völundardóttir, forstjóri Útlendingastofnunar.
Útlendingastofnun hefur við þetta tilefni brýnt fyrir starfsfólki sínu mikilvægi þess að gæta ítrustu varkárni við meðhöndlun þeirra gagna sem stofnuninni er treyst fyrir. Stofnunin mun hér eftir sem hingað til leggja áherslu á að upplýsa og fræða starfsfólk sitt um rétta meðferð gagna og þær skyldur sem hvíla á starfsmönnum samkvæmt lögum og reglum.