Fara beint í efnið
Útlendingastofnun Forsíða
Útlendingastofnun Forsíða

Útlendingastofnun

Vegabréfsáritanir færast til utanríkisráðuneytisins

13. maí 2026

Útlendingastofnun hefur ekki lengur aðkomu að útgáfu áritana

Með gildistöku nýrra laga um vegabréfsáritanir (nr. 37/2026) hefur framkvæmd vegabréfsáritana alfarið færst frá Útlendingastofnun til utanríkisráðuneytisins. Þetta þýðir að til viðbótar við útgáfu vegabréfsáritana til Íslands þá afgreiðir utanríkisráðuneytið nú umsóknir um framlengingu vegabréfsáritana og sinnir útgáfu áritana fyrir sjómenn. Fyrirspurnum varðandi framlengingar og sjómannaáritanir skal héðan í frá beint til visa@utn.is.

Samhliða þessari breytingu hefur ákvæði útlendingalaga um langtímavegabréfsáritanir verið fellt niður og nýtt ákvæði um skammtímadvalarleyfi tekið gildi. Útlendingur sem óskar eftir að dvelja á Íslandi lengur en 90 daga getur sótt um slíkt leyfi til Útlendingastofnunar, ef tilgangur dvalarinnar fellur ekki undir þær dvalarleyfategundir sem til eru og það er ekki ætlun viðkomandi að setjast að á landinu.

Frekari upplýsingar um skilyrði skammtímadvalarleyfis og hvernig eigi að sækja um slíkt leyfi verða birtar á vef Útlendingastofnunar á næstunni.