Fara beint í efnið
Útlendingastofnun Forsíða
Útlendingastofnun Forsíða

Útlendingastofnun

Útlendingastofnun hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar

16. október 2026

163 fyrirtæki, sveitarfélög og stofnanir hlutu viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar í ár fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi.

Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnurekstri sem unnið er í samstarfi við stjórnvöld og hagsmunaaðila í íslensku atvinnulífi. Markmið Jafnvægisvogarinnar er að stuðla að jafnari kynjahlutföllum í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja, opinberra stofnana, lífeyrissjóða og sveitarfélaga.

Viðurkenningarnar voru afhentar við hátíðlega athöfn í Háskóla Íslands þann 14. október undir yfirskriftinni „Losum um hnútinn“.

Útlendingastofnun fagnar viðurkenningunni, sem er ánægjuleg staðfesting á kynjajafnvægi í stjórendahópi stofnunarinnar. Viðurkenningin er jafnframt hvatning til að halda áfram að stuðla að jafnrétti og jöfnum tækifærum á vinnustaðnum.

Myndin af handhöfum viðurkenninganna var tekin af Sillu Páls.