Fara beint í efnið

Upplýsingar fyrir umsækjendur um ríkisborgararétt til Alþingis

23. júní 2021

Lög hafa verið samþykkt á Alþingi er varða veitingu ríkisborgararéttar.

Alþingi

Alþingi samþykkti lög um veitingu ríkisborgararéttar 13. júní síðastliðinn en lögin taka ekki gildi fyrr en daginn eftir birtingu þeirra í stjórnartíðindum.

Útlendingastofnun hefur ekki upplýsingar um hvenær lögin verða birt að þessu sinni en sambærileg lög hafa undanfarið verið birt fjórum til sex vikum eftir að þau voru samþykkt á Alþingi. Líklegt er að lögin taki því ekki gildi fyrr en eftir miðjan júlí.

Þegar lögin hafa tekið gildi útbýr Útlendingastofnun ríkisfangsbréf fyrir þá umsækjendur sem fengu veittan íslenskan ríkisborgararétt og sendir þau til Þjóðskrár. Liðið geta nokkrir dagar þar til Þjóðskrá hefur skráð umsækjendurna með íslenskt ríkisfang í þjóðskrárkerfið en fyrst þá geta þeir sótt um íslenskt vegabréf hjá embætti sýslumanns.

Alþingi sendir út synjunarbréf til þeirra sem ekki var veitt íslenskt ríkisfang. Ákvörðun um veitingu var alfarið í höndum Alþingis og getur Útlendingastofnun ekki svarað því hvers vegna tilteknum umsækjanda var ekki veittur íslenskur ríkisborgararéttur.